Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 11:48
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: Sky 
Keegan: Arsenal hefur ekki haft samband vegna Martins
Kevin Keegan, þjálfari Newcastle United, hefur varað Arsenal við því að gera tilboð í nígerska framherjan Obafemi Martins.

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er sagður vera aðdáandi Martins og hefur verið mikið orðaður við kappann á undanförnum misserum.

,,Ég hef ekki fengið tilboð, en ég vill halda öllum mínum leikmönnum og bæta við hópinn ef ég get," sagði Keegan.

,,Ef einhver myndi fara væri það svolítið áfall, sérstaklega ef það gerist seint í sumar. Arsenal hefur ekki haft samband við mig."
Slapp
banner