Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 08:00
Magnús Már Einarsson
Landsbankadeildin: Upphitun og viðtöl - Fjölnir - KR
Fjölnir og KR mætast í kvöld.
Fjölnir og KR mætast í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Gylfason mætir sínum gömlu félögum í KR í kvöld.
Ágúst Gylfason mætir sínum gömlu félögum í KR í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Guðjón Baldvinsson opnaði markareikning sinn fyrir KR gegn Grindavík.
Guðjón Baldvinsson opnaði markareikning sinn fyrir KR gegn Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Fimm leikir eru á dagskrá í Landsbankadeild karla í kvöld en klukkan 19:15 taka Fjölnismenn á móti KR.

Mikil stemning er fyrir leiknum í Grafarvogi enda verður þetta fyrsti heimaleikur Fjölnismanna í efstu deild og búast má við að margir kíki á völlinn. Ný 500 manna stúka er klár í Grafarvogi en bílastæði eru reyndar af skornum skammti og eru Grafarvogsbúar hvattir til að ganga á leikinn.

Þessi lið hafa aldrei áður mæst í deildarkeppni á Íslandi en þau mættust tvívegis í vetur.

Þá sigraði Fjölnir lið KR 4-2 í Reykjavíkurmótinu en í Lengjubikarnum snerist dæmið við og Vesturbæjarliðið sigraði 3-2.

Ágúst Þór Gylfason, Ásgeir Aron Ásgeirsson og Ólafur Páll Johnson í liði Fjölnis munu í kvöld mæta sínum gömlu félögum í KR og Ingimundur Níels Óskarsson, leikmaður KR, mun einnig mæta sínum gömlu félögum úr Grafarvogi.


Ágúst Þór Gylfason, leikmaður Fjölnis og fyrrum leikmaður KR
,,Byrjunin hefði ekki getað verið betri fyrir okkur, við vorum sáttir við að fá þrjú stig og svo er annar leikur á morgun, það er ekkert annað en að gera okkar besta og spila eins og við erum vanir að gera."

,,Þetta er einn af stóru leikjunum hjá mér í ár. Það verður gaman að kljást við gömlu félagana."

,,Þetta verður örugglega leikur sem flestir mæta á, ég held að metið á Fjölnisvelli sé 700 manns en það má búast við 1500 manns og mikilli stemningu. VIð tökum bara vel á móti KR-miðjunni, það verður gaman að heyra í henni og þetta verður leikur umferðarinnar, ég er viss um það."


Fjarverandi:
Halldór Freyr Ásgrímsson, meiddur
Kristinn Freyr Sigurðsson, meiddur

Guðjón Baldvinsson framherji KR
,,Mig grunar að það verði hörku stemmning í Grafarvoginum, fyrsti leikur liðsins í efstu deild á heimavelli og örugglega mikill áhugi fyrir því. Síðan verða okkar frábæru stuðningsmenn á staðnum, þannig það verður múgur og margmenni þarna býst ég við."

,,Fjölnisliðið er eins og margir vita, gífurlega sprækir, margir mjög fljótir og hættulegir leikmenn fram á við sem verður að hafa gætur á svo ég býst við erfiðum leik á móti góðu liði."

,,Markareikningurinn er opinn og ég verð bara að sjá hvernig leikurinn þróast, en að sjálfsögðu er ég alltaf á tánum fyrir marki. En fyrst og fremst hugsa ég um að ná í stigin þrjú."


Fjarverandi:
Stefán Logi Magnússon, meiddur
Grétar Ólafur Hjartarson, meiddur
Pétur Hafliði Marteinsson, meiddur
Uppákomur tengdar leiknum:

Klukkan 18:00 munu áhorfendur Fjölnis hittast hjá Foldaskóla en þar verður grillað og eitthvað gott að drekka með. Á staðnum verður boðið uppá Fjölnistattú og fleira. Þegar klukkan nálgast 19:00 verður gengið í skrúðgöngu útá Fjölnisvöll.
Þeir krakkar sem að eru undir 16 ára og mæta í Fjölnisbúning fá frítt inn.

Slapp
banner
banner