Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 14. maí 2008 21:06
Magnús Már Einarsson
Hörður Snævar Jónsson
Landsbankadeildin: Pálmi Rafn með þrennu í sigri Vals
Pálmi Rafn fagnar marki sínu í kvöld ásamt Bjarna Ólafi sem lagði það upp.
Pálmi Rafn fagnar marki sínu í kvöld ásamt Bjarna Ólafi sem lagði það upp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Ólafur Eiríksson og Scott Ramsay í leiknum í dag.
Bjarni Ólafur Eiríksson og Scott Ramsay í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 3 -0 Grindavík
1-0 Pálmi Rafn Pálmason (42)
2-0 Pálmi Rafn Pálmason (57)
3-0 Pálmi Rafn Pálmason (90

Hér má sjá textalýsingu af leiknum en eftir smá tíma koma inn viðtöl og umfjöllun um leikinn.




21:04 MARK! Pálmi Rafn Pálmason skoraði sitt þriðja mark í leiknum með skalla eftir skelfilegt úthlaup hjá Magnúsi Þormar.

21:02 Valsarar gera sína þriðju breytingu í leiknum, Sigurbörn Hreiðarsson fer útaf og í sínum fyrsta leik í Landsbankadeildinni, Baldur Þórólfsson en hann er einmitt sonur Þórólfs Árnasonar fyrrum borgarstjóra í Reykjavík.

20:58 Willum gerir aðra breytingu á stuttum tíma, Guðmundur Benediktsson fer af velli og í hans stað kemur Rasmus Hansen inná í sínum fyrsta leik.

20:53 Valsarar gera sína fyrstu breytingu, Heli Sigurðsson fer af velli og í hans stað kom Albert Brynjar Ingason inná.

20:52 845 áhorfendur lögðu leið sína á völlinn, það hafa oft verið fleiri á leikjum Vals.

20:51 Grindvíkingar gera sína þriðju breytingu inná kom Páll Guðmundson og út fór Zoran Stamenic.

20:47 Helgi Sigurðsson var kominn í gott færi eftir að hafa sloppið inn fyrir en Magnús Þormar gerði vel og náði boltanum af Helga.

20:35 Grindvíkingar gera sína aðra skiptingu í leiknum, Eysteinn Hún fór út og Alexander Veigar Þórarinsson kom inná.

20:30 MARK! Pálmi Rafn Pálmason hefur skorað sitt annað mark í leiknum. Hann skallaði boltann á Helga Sigurðsson sem gaf aftur á Pálma sem braust í gegnum vörn Grindavíkur og skoraði framhjá Magnúsi Þormar með góðu skoti.

20:18 Seinni hálfleik er hafinn en Grindvíkingar gerðu eina breytingu, Michael Jónsson kom inná fyrir Svein Þór Steingrímsson.

20:03 Hálfleikur er kominn, staðan er 1-0 fyrir Val en stuttu fyrir leikhlé átti Andri Steinn Birgisson skot að marki en Kjartan Sturluson varði vel.

19:57 MARK! Pálmi Rafn Pálmason hefur komið Val yfir með skoti inn í teig. Bjarni Ólafur lagði boltann út í teig þar sem Pálmi kom og setti boltann í netið.

19:47 Zoran Stamenic braut illa á Bjarna Ólafi Eiríkssyni og hlaut að launum gult spjald.

19:35 Magnús Þórisson dómari leiksins virðist gefa aukaspyrnur eftir pöntunum hér í Laugardalnum.

19:33 Valsarar hafa verið ívið sterkari en Scott Ramsey leikmaður Grindavíkur hefur verið að ógna á vellinum en ekki haft erindi sem erfiði.

19:19 Bjarni Ólafur Eiríksson á frábært skot en Magnús Þormar varði frábærlega.

19:15 Leikurinn er hafinn hér á Laugardalsvelli, vonandi fáum við skemmtilegan leik.

19:06: Leikmenn ganga nú til búningsherbergja enda styttist í leik.

19:00 Fólk er farið að týnast á völlinn og hér er spilað hið rándýra lag Meira Frelsi með Merzedes Club sem er að rífa þakið af velinum.

18:45 Byrjunarliðin eru klár en nýji danski leikmaður Vals, Rasmus Hansen er á bekknum og Daníel Hjaltason er ekki í hóp en hann á við meiðsli að stríða. Liðin eru eftirfarandi.

Valur Kjartan Sturluson (M), Birkir Már Sævarsson, Gunnar Einarsson, Atli Sveinn Þórarinsson (F), Bjarni Ólafur Eiríksson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Baldur Bett, Pálmi Rafn Pálmason, Rene Carlsen, Guðmundur Benediktsson, Helgi Sigurðsson.

Grindavík Magnús Þormar (M), Sveinn Þór Steingrímsson, Marinko Skaricic, Zoran Stamenic, Ray Anthony Jónsson, Scott Ramsay, Jóhann Helgason, Eysteinn Húni Hauksson, Orri Freyr Hjaltalín (F), Tomasz Stolpa, Andri Steinn Birgisson.

18:40 Verið velkominn í beina textalýsingu frá leik Vals og Grindavíkur sem fram fer á Laugardalsvelli en leikurinn hefst eftir rúman hálftíma, bæði lið töpuðu fyrsta leiknum, Grindvíkingar lágu fyrir KR á útivelli og Valur tapaði fyrir Keflavík suður með sjó.
Slapp
banner