Meistaraflokkur Gróttu í knattspyrnu mun halda firma-og hópakeppni í knattspyrnu laugardaginn 24.maí næstkomandi. Leikið verður á gervigrasvelli Gróttu.
Mótið hefst upp úr hádegi (fer eftir fjölda liða) og lýkur áður en að Júróvisjón hefst síðar um kvöldið. Tilvalið að smella sér í fótbolta og koma sér í gang fyrir kvöldið. Það er ekki leikið í Landsbankadeildinni þennan daginn þannig að þetta ætti að steinliggja.
Leikið verður í 6 manna liðum (einn markvörður og 5 útileikmenn)
Heildarfjöldi leikmanna í liði eru 10 leikmenn.
Leiktími er 1 x 12 mínútur
Leikmenn úr efstu þremur deildum eru ekki löglegir enda allir hvort eð er að spila á fullu.
Vegleg verðlaun í boði
Þátttökugjald er 10 þúsund krónur per lið
Skráning fer fram á [email protected]. Síðasta dagur til að skrá sig er 20.maí.
Nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu [email protected]


