Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 08:00
Magnús Már Einarsson
Landsbankadeildin: Upphitun og viðtöl - Breiðablik - Þróttur R.
Marel Baldvinsson er allur að koma til eftir meiðsli.
Marel Baldvinsson er allur að koma til eftir meiðsli.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Hjörtur Hjartarson segir leikmenn Þróttar eiga mikið inni.
Hjörtur Hjartarson segir leikmenn Þróttar eiga mikið inni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik hjá Breiðablik og Þrótti í Lengjubikarnum 2007.
Úr leik hjá Breiðablik og Þrótti í Lengjubikarnum 2007.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Fimm leikir eru á dagskrá í Landsbankadeild karla í kvöld en klukkan 19:15 taka Blikar á móti Þrótti í Kópavogi.

Þessi lið hafa ekki verið saman í deild undanfarin á en síðast mættust þau í deildarkeppni árið 2004. Þá varð 1-1 jafntefli í fyrri leiknum en Þróttarar unnu 1-0 í þeim síðari.

Í fyrstu umferðinni á laugardag lágu Þróttarar 3-0 á heimavelli í nýliðaslag gegn Fjölni en Blikar gerðu 1-1 jafntefli við ÍA uppi á Skaga.

Hjá Blikum eru allir klárir í slaginn í kvöld og framherjinn Marel Baldvinsson, sem kom inn á sem varamaður gegn ÍA, er allur að koma til eftir meiðsli.

Hjá Þrótturum er fyrirliðinn Sigmundur Kristjánsson frá vegna meiðsla og Birkir Pálsson verður einnig frá meirihluta sumarsins. Þá eru Arnljótur Ástvaldsson og Jens Elvar Sævarsson að jafna sig af meiðslum. Hægri bakvörðurinn Jón Ragnar Jónsson er hins vegar klár í slaginn en hann er kominn heim frá Bandaríkjunum þar sem hann var í námi.


Marel Baldvinsson framherji Blika
,,Úrslitin á Skaganum voru þannig séð ásættanleg úrslit þó að okkur finnist að við hefðum átt að klára þann leik miðað við færin sem við vorum að fá. Ég held að þeir hafi allavega verið ánægðari með stigið en við."

,,Ég veit voðalega lítið um Þrótt en þegar að lið fá svona skell þá held ég að þau mæti dýrvitlaus til leiks því það finnst engum gaman að fá marga skelli í röð. Þannig að ég býst við hörkuleik."

,,Ég er byrjaður að æfa á fullu og er að reyna að koma mér í stand aftur. Ég spilaði síðast um miðjan mars þannig að það tók tíma að koma til baka úr þessum meiðslum."


Fjarverandi:
Enginn

Hjörtur Júlíus Hjartarson framherji Þróttar R.
,,Ef við gerum ekki betur heldur en við gerðum í leiknum á laugardaginn þá fáum við aðra rassskellingu á Kópavogsvelli á morgun (í kvöld). Okkar takmark er bara að girða okkur í brók, þjappa liðinu saman og gera þetta að viti."

,,Ég held að Breiðablik skipi sér í flokk sem eitt af 4 eða 5 sterkustu liðunum í deildinni í dag og Kópavogsvöllur verður örugglega einn af erfiðustu útivöllunum í sumar þannig að þetta verður verðugt verkefni fyrir okkur Þróttara að mæta þeim á morgun (í kvöld)."

,,Ef við tökum mið af frammistöðunni á laugardag þá eigum við mjög mikið inni. Við vorum að spila langt undir getu gegn Fjölni á laugardaginn og ef ég myndi ekki trúa því við gætum gert betur en þetta þá myndi ég hætta þessu en ég er sannfærður um að við getum gert betur og munum gera betur á morgun (í kvöld)."


Fjarverandi:
Sigmundur Kristjánsson meiddur
Birkir Pálsson meiddur
Arnljótur Ástvaldsson tæpur vegna meiðsla
Jens Elvar Sævarsson tæpur vegna meiðsla
Síðustu leikir liðanna (Árið 2004):

Breiðablik 1 - 1 Þróttur
Þróttur 1 - 0 Breiðablik
Uppákomur tengdar leiknum:

Stuðningsmenn Blika ætla að hittast 16:15 á Players í dag.

Slapp
banner