Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 14. maí 2008 18:08
Magnús Már Einarsson
Heimild: Úrvalsdeild Suður-Afríku 
Árni Gautur átti góðan leik með Zulu
Árni Gautur á landsliðsæfingu.
Árni Gautur á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Árni Gautur Arason átti prýðilegan leik þegar lið hans Thanda Royal Zulu sigraði BidVest Wits 3-2 í suður-afríska boltanum í gær.

Með sigrinum er Thanda Royal Zulu í fjórtánda og þriðja neðsta sæti eftir 29 umferðir í Suður-Afríku.

Liðið á ennþá góða möguleika að halda sæti sínu í deildinni en sem stendur er Zulu þremur stigum á undan Black Leopards sem er í næstneðsta sæti.

Árni Gautur gekk til liðs við Thanda Royal Zulu á dögunum. Hann hafði áður verið án félags í vetur eftir nokkurra ára dvöl hjá Valerenga í Noregi.
Slapp
banner
banner
banner