Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Þorsteinn Þorvaldsson í Magna (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Þorvaldsson hefur gengið að nýju til liðs við Magna Grenivík. Þorsteinn lék með Magna í fyrra en gekk til liðs við KA í vetur.

Þorsteinn lék með öðrum flokki KA 2005 og 2006 en hann hafði áður leikið með Völsungi og Eilífi í Mývatnssveit. Hann fór aftur til KA í vetur en nú hefur hann tekið ákvörðun um að leika með Magna í sumar.

Síðastliðið sumar var hann lykilmaður í liði Magna og skoraði sjö mörk í annarri deildinni.

Hann var markahæsti leikmaður liðsins og hjálpaði því að halda sæti sínu í deildinni.

Þorsteinn var meðal annars valinn leikmaður 17.umferðar hér á Fótbolti.net í fyrra fyrir góða frammistöðu í mikilvægum útsigri Magna á Sindra.
Slapp
banner