Valur 3 – 0 Grindavík
1-0 Pálmi Rafn Pálmason (’42)
2-0 Pálmi Rafn Pálmason (’57)
3-0 Pálmi Rafn Pálmason ('91)
1-0 Pálmi Rafn Pálmason (’42)
2-0 Pálmi Rafn Pálmason (’57)
3-0 Pálmi Rafn Pálmason ('91)
Valur lagði Grindavík 3-0 á Laugardalsvelli í kvöld. Pálmi Rafn Pálmason skoraði öll mörk Íslandsmeistaranna en hann kann greinilega vel við sig gegn Grindavík því hann skoraði einnig bæði mörk Valsmanna í 2-1 sigri liðsins á Grindvíkingum í síðasta deildarleik liðana árið 2006.
Valsmenn gerðu eina breytingu á byrjunarliðinu frá því í tapinu gegn Keflavík á laugardaginn, Sigurbjörn Hreiðarsson kom inn í liðið fyrir Daníel Hjaltason.
Þá var hinn danski Rasmus Hansen á varamannabekknum en hann kom til liðsins í fyrradag.
Milan Stefán Jankovic gerði hins vegar enga breytingu á byrjunarliði sínu frá því í tapinu gegn KR um síðustu helgi.
Valsarar hófu leikinn af meiri krafti og sóttu meira á meðan Grindvíkingar lágu til baka. Fyrsta marktiraunin kom strax á þriðju mínútu en Bjarni Ólafur Eiríksson átti þá fínt skot af löngu færi en Magnús Þormar varði í horn.
Grindvíkingar áttu síðan tvö langskot framhjá en að öðru leyti gerðist lítið sem ekkert þangað til á 42.mínútu þegar að Valsmenn brutu ísinn.
Rene Carlsen sendi fyrir frá vinstri, Pálmi Rafn skallaði boltann aftur út til hliðar, á Bjarna Ólaf Eiríksson sem sendi síðan aftur út í teiginn. Þar var Pálmi Rafn mættur og skoraði framhjá Magnúsi Þormari sem var reyndar í boltanum en kom engum vörnum við.
Síðasta orðið í fyrri hálfleik átti Andri Steinn Birgisson. Hann náði snúningi og skoti í vítateigsboganum en Kjartan Sturluson var vandanum vaxinn í markinu og staðan í leikhléi 1-0 fyrir Val.
Pálmi Rafn hafði ekki sagt sitt síðasta orð í leiknum en hann kom Valsmönnum í 2-0 á 57.mínútu. Helgi Sigurðsson gaf á Pálma, hann tók skrefið til hliðar framhjá varnarmanni og skoraði með fínu skoti.
Fimm mínútum eftir markið gerði Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindvíkinga taktíska breytingu en hann tók Eystein Húna Hauksson af velli, setti Alexander Veigar Þórarinsson inná í hans stað og breytti í 4-4-2 leikkerfi.
Sú breyting skilaði ekki miklu en næsta góða færi í leiknum féll í skaut Valsmanna. Helgi Sigurðsson komst þá einn á móti Magnúsi sem hirti boltann af tánum á honum.
Þegar mínúta var eftir af venjulegum leiktíma kom Baldur Þórólfsson inn á sem varamaður í sínum fyrsta leik í Landsbankadeildinni.
Hann stimplaði sig inn tveimur mínútum síðar þegar hann átti fyrirgjöf á fjærstöng, yfir Magnús í markinu, og þar var Pálmi Rafn mættur og átti ekki í erfiðleikum með að skalla í netið og innsigla þrennuna.
Lokatölurnar 3-0 fyrir Val sem eru þar með komnir með þrjú stig eftir tvo leiki en liðið mætir Fylki í næsta leik í Árbænum á mánudag. Grindvíkingar eru hins vegar án stiga eftir tvö töp á útivelli í fyrstu tveimur leikjunum en liðið fær Fjölni í heimsókn næstkomandi mánudagkvöld.
Valur (4-4-2): Kjartan Sturluson (M), Birkir Már Sævarsson, Atli Sveinn Þórarinsson (F), Gunnar Einarsson, Rene Carlsen, Sigurbjörn Hreiðarsson (F) (Baldur Þorólfsson 89), Pálmi Rafn Pálmason, Baldur Bett, Bjarni Ólafur Eiríksson, Guðmundur Benediktsson (Rasmus Hansen 85), Helgi Sigurðsson (Albert Brynjar Ingason 81).
Ónotaðir varamenn: Ágúst Bjarni Garðarsson (M), Einar Marteinsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Geir Brynjólfsson.
Grindavík (4-5-1): Magnús Þormar (M), Sveinn Þór Steingrímsson (Michael J. Jónsson ’46), Zoran Stamenic (Páll Guðmundsson 78), Marinko Skaricic, Ray Anthony Jónsson, Scott Ramsay, Eysteinn Húni Hauksson (Alexander Veigar Þórarinsson 63), Jóhann Helgason, Orri Freyr Hjaltalín (F), Tomasz Stolpa, Andri Steinn Birgisson,
Ónotaðir varamenn: Óskar Pétursson (M), Marko Valdimar Stefánsson, Emil Daði Símonarson, Ólafur Daði Hermannsson.
Dómari: Magnús Þórisson
Aðstæður: Frábært veður og völlurinn þokkalegur miðað við árstíma.
Áhorfendur: 845
Maður leiksins: Pálmi Rafn Pálmason (Valur)
Gul spjöld: Zoran Stamenic (Grindavík (’32), Tomasz Stolpa (Grindavík) (’61), Scott Ramsay (Grindavík) (’64), Atli Sveinn Þórarinsson ('86) (Valur)



