Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 14. maí 2008 21:31
Hörður Snævar Jónsson
Pálmi Rafn: Fékk góða hjálp við þessi mörk
Pálmi fagnar fyrsta marki sínu í leiknum.
Pálmi fagnar fyrsta marki sínu í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það er ekki annað hægt en að vera glaður eftir svona sigur," sagði Pálmi Rafn Pálmason markaskorari Vals í samtali við Fótbolta.net.

Pálmi Rafn skoraði öll þrjú mörk Vals í sigri liðsins á Grindavík en þetta voru fyrstu stig Vals í sumar.

,,Ég náði þremur mörkum og það er mjög ánægjulegt en ég fékk líka góða hjálp við það," sagði Pálmi en þetta var hans fyrsta þrenna hans í efstu deild.

,,Það er ágætt að vera kominn með þetta, er þetta ekki flott á "recordið"? sagði Pálmi sem var ánægður með sigurinn.

,,Þetta léttir heldur betur á mönnum það er ekki hægt að segja annað," sagði Pálmi en Valur tapaði fyrsta leiknum gegn Keflavik 5-3. Pálmi hefur ekki svör við því hvað gerðist hjá Valsmönnum þar.

,,Í rauninni ekki, ég hef ekkert svar við þeim leik. Það var eitthvað sem klikkaði í okkar liði en við náðum laga það."

,,Mér fannst hún bara vera oftast mjög góð, við þurftum oft að losa okkur undan pressu sem Grindavík var að setja á okkur, þeir eru stór hættulegir en við brugðumst við því og heilt yfir var ég nokkuð ánægður með okkar spilamennsku," sagði Pálmi Rafn glaður í leikslokum.
Slapp
banner
banner