,,Þeir pressuðu strax, leyfðu okkur ekki að spila og spilamennska okkur var ekki nógu góð, sérstaklega í fyrri hálfleik," sagði Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindvíkinga eftir 3-0 tap liðsins gegn Val í Landsbankdeild karla í kvöld.
,,Valur er með sterkt lið, þeir voru mun grimmari og ætluðu sér sigur. Við ætlum að halda áfram og reyna að vinna næsta leik sem er á mánudaginn gegn Fjölni."
Grindavíkingar töpuðu einnig í fyrstu umferð en þá þurfti liðið að lúta í gras gegn KR í Vesturbænum.
,,Þessir tveir fyrstu leikir voru á móti tveimur sterkum liðum. Við sýndum að við getum þetta alveg og með meira sjálfstrausti mun þetta koma."
Scott Ramsay, sem átti frábæran leik gegn KR, hafði sig ekki jafn mikið frammi í kvöld en Valsmönnum gekk ágætlega að loka á hann.
,,Þeir vita að Scotty er einn af bestu leikmönnunum á Íslandi og þeir lokuðu vel á hann í dag, þeir voru alltaf með tvo menn á honum. Þetta var kannski tækifæri fyrir hina til að fá boltann en það tókst ekki, það er mjög erfitt að spila á móti svona liði eins og Val í dag."
Framherjinn Gilles Mbang Ondo, frá Gabon, hefur ekki ennþá fengið leikheimild með Grindavík og gat því ekki leikið með liðinu í kvöld.
Það kemur í ljós á morgun hvort að hann fái leikheimild áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti en nái hann að fá félagaskipti gæti hann nýst Grindvíkingum í baráttunni framundan.
,,Kannski vantar okkur einn mann sem getur haldið boltanum meira. Við spilum ágætlega fyrir utan vítateig en það vantar kannski fleiri menn til að klára færin."
,,Hver einasti leikmaður hjálpar okkur. Þeir leikmenn sem ætluðu að koma hættu við á síðustu stundu sem er mjög slæmt. það er erfitt að finna menn á síðustu stundu," sagði Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindvíkinga að lokum við Fótbolta.net.

