Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 14. maí 2008 21:43
Hörður Snævar Jónsson
Willum Þór: Get ekki leyft mér neina ofur bjartsýni
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það má segja það að manni sé létt en þetta var hörku vinna og vel samstillt lið í dag og allir tilbúnir í þetta," sagði Willum Þór Þórsson þjálfari Vals í samtali við Fótbolta.net eftir að hans menn höfðu unnið Grindavík 3-0 þar sem Pálmi Rafn Pálmason skoraði öll mörk liðsins.

,,Ég get ekki sagt að Grindavík hafi komið mér á óvart, þetta er hörku lið, eru vel spilandi og eiga eftir að bíta frá sér," sagði Willum sem var ánægður með spilamennsku liðsins.

,,Hvað segir maður eftir 3-0 sigur? Við lögðum upp það og vorum búnir að undirbúa okkur fyrir þetta mót að hver einasti leikur verður hörkuleiki, ég held að fyrsta umferðin kenni okkur það."

Willum hrósaði Pálma Rafn sem skoraði þrennu. ,,Það er auðvitað þannig þegar liðsheildin er að virka og allir að gefa allt sitt, menn eru samstilltir þá skína einstaklingarnir og það var hjá Pálma í dag en það voru líka fleiri að spila vel."

Baldur Þórólfsson var að koma inná í sínum fyrsta leik í Landsbankadeildinni og hafði ekki verið lengi yfir þegar hann lagði upp þriðja mark leiksins.

,,Við getum svo sannarlega samglaðst honum, hann er fyrirmyndir íþróttamaður," sagði Willum en í dag lék Daninn, Rasmus Hansen sinn fyrsta leik fyrir Val.

,,Hann er búinn að vera í deiglunni lengi hjá okkur, við þekkum vel til hans og hann var með okkur í fyrra sumar og er hörku miðjumaður sem getur leyst allar stöður á miðjunni og bakvarðarstöðurnar líka þannig að hann er svona alhliða leikmaður."

,,Ég get ekki leyft mér neina ofur bjartsýni því fyrsta umferðin var það sem koma skal," sagði Willum að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner