Heimild: Reuters
Karel Brueckner landsliðsþjálfari Tékka valdi í gær 23-manna hóp sinn fyrir EM í sumar.
Pavel Nedved leikmaður Juventus er ekki í hópnum en orðrómur hefur verið uppi um að þessi fyrrum landsliðsfyrirliði Tékka myndi taka landsliðsskóna af hillunni fyrir EM.
Þá var Tomas Rosicky fyrirliði Tékka ekki valinn vegna meiðsla en einn nýliði er í hópnum, Vaclav Sverkos, framherji Banik Ostrava og markahæsti leikmaðurinn í tékkesku deildinni sem stendur.
Tékkar eru með Svisslendingum, Portúgölum og Tyrkjum í riðli á EM í sumar en mótið hefst í byrjun júní næstkomandi.
Markmenn: Jaromir Blazek (Nuremberg), Petr Cech (Chelsea), Daniel Zitka (Anderlecht)
Varnarmenn: Zdenek Grygera (Juventus), Marek Jankulovski (AC Milan), Michal Kadlec, Tomas Sivok (both Sparta Prague), Radoslav Kovac (Spartak Moscow), Zdenek Pospech (FC Copenhagen), David Rozehnal (Lazio), Tomas Ujfalusi (Fiorentina)
Miðjumenn: Tomas Galasek (Nuremberg), David Jarolim (Hamburg), Marek Matejovsky (Reading), Jaroslav Plasil (Osasuna), Jan Polak (Anderlecht), Daniel Pudil (Slavia Prague), Libor Sionko (FC Copenhagen), Stanislav Vlcek (Anderlecht)
Framherjar: Milan Baros (Portsmouth), Martin Fenin (Eintracht Frankfurt), Jan Koller (Nuremberg), Vaclav Sverkos (Banik Ostrava).

