Örn Kató Hauksson er genginn í raðir Landsbankadeildarliðs Fram og æfði með liðinu í gær en hann kemur úr þriðju deildarliði Hamranna þangað sem hann hafði komið í mars frá Val. Örn Kató er ekki í leikmannahópi Fram sem mætir HK í Landsbankadeildinni í kvöld en er kominn með leikheimild með félaginu.
,,Ég var lítið búinn að æfa í vetur og var á báðum áttum hvort ég ætti að halda áfram á fullu en svo kitlaði mig að byrja aftur á fullu og mig langaði að koma mér í stand aftur," sagði Örn Kató við Fótbolta.net í gærkvöld.
,,Þorvaldur [Örlygsson þjálfari Fram] var búinn að hafa samband fyrir nokkru síðan svo ég ákvað að slá til. Ég er ekki að fara að spila strax og er ekki í hóp á morgun. Ég er ekki búinn að æfa mikið í vetur og þarf að taka smá tíma í að koma mér aftur í ágætis stand."
Örn Kató kom til Vals fyrir sumarið 2006 og lék tólf leiki með liðinu í Landsbankadeildinni. Síðastliðið sumar var hann í láni hjá KA en sú dvöl var skammvinn því hann handleggsbrotnaði í fyrsta leik sínum.
Síðar um sumarið fór hann síðan í Fjarðabyggð á láni og lék níu leiki með liðinu í fyrstu deildinni, þá undir stjórn Þorvaldar Örlygssonar en hann hafði áður leikið undir stjórn hans hjá KA og gengur nú aftur til liðs við hann hjá Fram.



