Heimild: Folkbladet
Bakvörðurinn Gunnar Þór Gunnarsson skoraði eitt marka IFK Norrköping sem bar 4-3 sigurorð af neðri deildarliðinu Vasalund í fyrstu umferð sænsku bikarkeppninnar í gærkvöldi.
Mark Gunnars Þórs kom þegar átta mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og var það jafnframt þriðja mark liðsins í leiknum.
Garðar Gunnlaugsson var ekki í leikmannahópi Norrköping vegna meiðsla.




