Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Landsbankadeildin: Upphitun og viðtöl - Fram - HK
Úr leik liðanna á síðsutu leiktíð.
Úr leik liðanna á síðsutu leiktíð.
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Fram og HK mætast í annarri umferð Landsbankadeildar karla í kvöld en liðin skiptust á sigrunum í leikjum liðanna á síðustu leiktíð. Framarar hafa byrjað þessa leiktíð betur með 0-3 sigri á Fylki í fyrstu umferðinni en HK tapaði 4-0 fyrir FH á Kópavogsvelli á sama tíma.



Auðun Helgason varnarmaður Fram:
,,Það er gaman að þetta sé byrjað og spilað þétt og sól og sumar. HK er með hörkulið, þeir fengu reyndar svolítinn skell í byrjun en eru vanir að rífa sig upp. Þeir sýndu það margoft í fyrra að þó þeir hafi átt dapra leiki inn á milli þá náðu þeir sér ótrúlega vel á strik. Þeir eru með marga útlendinga sem hafa komið á síðustu vikum svo þetta lið á eftir að púslast betur saman. Við spiluðum við þá í mars eða byrjun apríl og þeir eru með hörkulið."

,,Ég er að vona að við náum að fylgja leiknum uppí Árbæ eftir, og hann gefi okkur aukið sjálfstraust. Við erum reyndar að missa Jón Þorgrím út og erum með lítinn hóp fyrir. Það er samt góð stemmning í hópnum og hugur í mönnum."

,,Þetta gekk feykilega vel hjá mér á laugardaginn. Fylkismenn spiluðu með tvo menn frammi en við tókum þá föstum tökum og þeir fengu ekki neitt gefins. Þetta snýst um að vera ekki að gefa neitt og ég og Reynir [Leósson] ætlum ekki að gefa neitt í kvöld heldur. Öll vörnin var að spila mjög vel og svo reynir á okkur aftur í kvöld að sína sama leik."


Fjarverandi:
Jón Þorgrímur Stefánsson, meiddur
Henrik Eggerts, meiddur
Grímur Björn Grímsson, meiddur

Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður og fyrirliði HK:
,,Okkur hlakkar mikið til að mæta Fram, okkur þykir leiðinlegt hvað við brugðumst okkar fólki í fyrsta leiknum með frammistöðu okkar."

,,Við vorum mjög ósáttir við sjálfa okkur eftir leikinn og erum búnir að vinna mikið í sjálfum okkur í vikunni í undirbúningnum fyrir Fram leikinn. Við ætlum okkur stærri hluti þar heldur en á laugardaginn."

,,Það var fullt af hlutum að á laugardagin, við vorum ekki að fara eftir því sem var sett upp fyrir okkur fyrir leikinn og það gefur aldrei góð fyrirheit. Hugarfarið var ekki alveg eins og það átti að vera og við ætlum að laga þessa hluti fyrir morgundaginn."


Fjarverandi:
Iddi Alkhag, meiddur
Bjarki Már Sigvaldason, meiddur
Hafsteinn Briem, meiddur
Hörður Már Magnússon, meiddur
Kristján Ari Halldórsson, meiddur
Uppákomur tengdar leiknum:

Framarar ætla að hita upp á Classic Rock frá kl. 18:00 og mun Freyr Karlsson fyrrverandi leikmaður þeirra meðal annars spjalla um leikinn framundan..

Slapp
banner