Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Joe Cole: Messi er betri en Cristiano Ronaldo
Joe Cole leikmaður Chelsea segir að Argentínumaðurinn knái Lionel Messi sé betri en Cristiano Ronaldo leikmaður Manchester United. Cole segir að Messi hafi verið betri þegar að Barcelona og Manchester United mættust í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

,,Ronaldo hefur verið frábær en í undanúrslitunum sýndi Messi að hann er aðalmaðurinn," sagði Cole.

,,Hann er líka einungis 20 ára, ímyndið ykkur hversu góður hann verður næstu tíu árin."

Orðrómur hefur verið um að Chelsea ætli að kaupa Messi á 80 milljónir punda og Cole myndi ekki leiðast það. ,,Ef við gætum fengið hann myndi ég gjarnan vilja spila við hlið hans," sagði Cole.

Manchester United og Chelsea mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í næstu viku og þessi orð munu væntanlega espa Ronaldo fyrir þann leik en Portúgalinn hefur farið á kostum á tímabilinu og skoraði meðal annars 31 mark í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
banner
banner
banner