Heimild: BBC
Sammy Lee á í viðræðum við Liverpool þessa dagana um að gerast aðstoðarstjóri Rafael Benitez.
Þessi fyrrum leimaður Liverpool hefur rætt við forráðamenn félagsins en Benitez hefur ekki haft neinn aðstoðarmann síðan Pako Ayesteran yfirgaf félagið í ágúst.
Alex Miller, aðalliðsþjálfari, var í því að aðstoða Benitez en hann tók við japanska liðinu JEF United á dögunum.
Sammy Lee, sem er 49 ára, tók við Bolton síðastliðið sumar en hann fékk síðan að fjúka í október eftir lélegt gengi.
Nú stefnir hins vegar í að Lee taki við aðstoðarstjórastöðunni hjá Liverpool en hann hefur áður þjálfað varalið félagsins og séð um æfingar hjá aðalliðinu.



