Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Cristiano Ronaldo og Sir Alex Ferguson bestir á tímabilinu
Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United, fékk í gær afhent verðlaun fyrir að vera besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu og þá var Sir Alex Ferguson stjóri hans valinn besti knattspyrnustjóri tímabilsins.

Ronaldo hefur unnið þessi verðlaun tvö ár í röð en hann lék frábærlega í ensku úrvalsdeildinni í vetur og skorað 31 mark í leið United að titlinum.

Ferguson hefur átta sinnum áður unnið til þessara verðlauna en á ferli sínum hjá United hefur hann tíu sinnum orðið enskur meistari og fimm sinnum bikarmeistari.

Ronaldo fékk einnig gullskólinn fyrir að vera markahæstur í deildinni. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem fer yfir 30 marka múrinn síðan Alan Shearer skoraði 31 mark fyrir tólf árum en þá lék hann með Blackburn.
Slapp
banner
banner
banner