Keflavík og Fylkir mætast í annarri umferð Landsbankadeildarinnar í kvöld klukkan 19:15 á Sparisjóðsvellinum í Keflavík. Liðin fengu ólíkt hlutskipti í fyrstu umferðinni þar sem Keflavík burstaði Íslandsmeistara Vals 5-3 en Fylkir tapaði 0-3 heima fyrir Fram.
Við heyrðum í Herði Sveinssyni framherja Keflavíkur fyrir leikinn en hann gekk í raðir félagsins kvöldið fyrir leikinn gegn Val og ræddum einnig við Hauk Inga Guðnason framherja Fylkis sem ólst upp í Keflavík og er því að koma á heimaslóðir.
Við heyrðum í Herði Sveinssyni framherja Keflavíkur fyrir leikinn en hann gekk í raðir félagsins kvöldið fyrir leikinn gegn Val og ræddum einnig við Hauk Inga Guðnason framherja Fylkis sem ólst upp í Keflavík og er því að koma á heimaslóðir.
Hörður Sveinsson framherji Keflavíkur:
,,Við fengum góð þrjú stig í síðustu umferð og þurfum bara að vera áfram á tánum og byggja upp ofan á það. Fylkismenn fengu skell í síðasta leik og koma eflaust grimmir til leiks. Það verður vonandi boðið uppá mjög skemmtilegan leik."
,,Ég er búinn að taka nokkrar æfingar með liðinu og lýst bara mjög vel á þetta. Þetta eru allt mjög ferskir einstaklingar. Það er gaman á æfingum auk þess sem það er vel tekið á því. Það getur verið strembið að vinna sæti í liðinu en maður verður bara að vera þolinmóður og bíða eftir sínu tækifæri. Ég kemst vonandi inn í þetta sem fyrst."
,,Undirbúningurinn sem ég fékk fyrir leikinn gegn Val var ekkert svakalegur, kom með flugi til landsins kvöldið áður. Það var mjög þægilegt að koma inn í þetta og vinna leikinn. Það er góð samstaða í hópnum og allir virðast ná mjög vel saman."
Fjarverandi:
(Enginn)
Haukur Ingi Guðnason framherji Fylkis:
,,Það er alltaf gaman að spila í Keflavík og sérstaklega fyrir mig því ég er alinn hérna upp og þetta er minn heimabær. Mér líður alltaf eins og heima hjá mér þegar ég kem hingað svo það verður mjög gaman að takast á við þá."
,,Það er alltaf erfitt að spila við Keflavík því þeir eru með hörkulið og lið sem gefur ekkert eftir og er erfitt heim að sækja. Að sama skapi er líka gaman að geta mætt þeim og að spila í Keflavík. Þeir byrjuðu mjög vel og að sama skapi byrjuðum við illa. Þetta verður hörkuleikur, við verðum að sýna og sanna að það sé eitthvað í okkur spunnið og það verði ekki valtað yfir okkur."
,,Ég er sjálfur alveg þokkalegur í dag, ég verð aldrei alveg góður af meiðslum en ég er misgóður og í dag er ég nokkuð góður. Þetta getur verið mismunandi milli daga, ég hitti lækninn í vetur og þetta var mikið verra en hann vildi láta í veðri vaka á sínum tíma, til að draga ekki úr mér. Ég er þokkalegur í dag og reyni að hugsa ekkert of langt fram í tímann því það getur farið eftir veðri, hitastigi og öðru hvernig mér liður í hnénu. Ég hef náð nokkrum æfingum í röð og er búinn að vera fínn."
Umræða um fjármál félagsins í fjölmiðlum:
,,Þetta er algjörlega eitthvað sem á að reyna að halda aðskildu frá leiknum og ég held að menn reyni að gera það. Ég hef reynt að forðast að kynna mér þetta og vera að skipta mér af fjárhagsstöðu liðanna. Það er ekki það sem skiptir máli þegar upp er staðið. Ég finn ekki fyrir neinni óánægju og veit ekki alveg hver staðan er."
Fjarverandi:
Valur Fannar Gíslason, í leikbanni
Viðar Guðjónsson er tæpur vegna ökklameiðsla
Síðustu leikir liðanna:
Keflavík 1-0 Fylkir (27. júní 2007)
Fylkir 3-0 Keflavík (23. september 2007)
Keflavík 1-0 Fylkir (27. júní 2007)
Fylkir 3-0 Keflavík (23. september 2007)
Uppákomur tengdar leiknum:
Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis og stuðningsmannafélagið Kiddi Tomm hafa tekið höndum saman og leigt rútu fyrir stuðningsmenn liðsins til Keflavikur. Reiknað er með að rúturnar fari frá kirkjuplaninu 18:00 og verður fargjaldinu stillt í hóf, eða aðeins 500 krónur fyrir manninn.
Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis og stuðningsmannafélagið Kiddi Tomm hafa tekið höndum saman og leigt rútu fyrir stuðningsmenn liðsins til Keflavikur. Reiknað er með að rúturnar fari frá kirkjuplaninu 18:00 og verður fargjaldinu stillt í hóf, eða aðeins 500 krónur fyrir manninn.



