FH og ÍA mætast í stórleik annarar umferðar í Landsbankadeild karla í kvöld en liðunum er spáð meðal efstu liða í deildinni þetta sumarið. Þarna mætast þeir Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA og Heimir Guðjónsson þjálfari FH en Heimir var leikmaður undir stjórn Guðjóns hjá KA og KR á sínum tíma.
Við heyrðum í Þórði Guðjónssyni framherja ÍA sem hefur glímt við meiðsli en spilaði tíu mínútur í fyrstu umferðinni gegn Breiðablik í leik sem endaði með 1-1 jafntefli.
Við heyrðum einnig í Frey Bjarnasyni miðverði FH fyrir leikinn en Freyr er uppalinn á Skaganum og hóf þar sinn feril en hefur verið alla þessa öld hjá FH en hann kom óvænt inn í byrjunarlið FH í fyrstu umferðinni og stóð sig vel í miðvarðarstöðunni í 4-0 sigri á HK.
Við heyrðum í Þórði Guðjónssyni framherja ÍA sem hefur glímt við meiðsli en spilaði tíu mínútur í fyrstu umferðinni gegn Breiðablik í leik sem endaði með 1-1 jafntefli.
Við heyrðum einnig í Frey Bjarnasyni miðverði FH fyrir leikinn en Freyr er uppalinn á Skaganum og hóf þar sinn feril en hefur verið alla þessa öld hjá FH en hann kom óvænt inn í byrjunarlið FH í fyrstu umferðinni og stóð sig vel í miðvarðarstöðunni í 4-0 sigri á HK.
Freyr Bjarnason varnarmaður FH:
,,Þetta verður hörkurimma. Ég á ekki von á öðru. Alltaf þegar við höfum spilað við Skagamenn hafa það verið miklir baráttuleikir og ég á að það verði líka í þessum leik. Skagamenn eru með mjög sterkt lið og leggja mikið uppúr föstum leikatriðum og vera fastir fyrir. Við þurfum bara að mæta því ef við ætlum að ná einhverjum árangri í þessum leik."
,,Ég er orðinn dálítið vanur því að spila gegn mínum gömlu félögum. Fyrst þegar ég var að spila á móti þeim var það svolítið skrítið og það reyndi svolítið á taugarnar en núna er þetta eins og að spila við hvert annað lið."
,,Ég spilaði miðvarðarstöðuna tímabilið 2001 með FH og líður alltaf vel í þessari stöðu. Þetta er skemmtileg staða en ég spila bara þar sem Heimir setur mig og er fyrst og fremst ánægður að fá að spila, þetta er sterkt lið og barist um sæti á öllum stöðum. Ég var búinn að vera á bekknum í allan vetur og svo æxluðust málin þannig að ég fékk tækifærið í fyrsta leik og ég ætla að gera mitt allra besta til að halda mínu sæti. Ég ætla að reyna að gefa ekkert eftir í því."
,,Ég var mjög ánægður með leikinn gegn HK. Við mættum ákveðnir til leiks og ætluðum okkur sigur í fyrsta leik. Við vitum að það er mjög mikilvægt að byrja mótið vel og pressuðum HK stíft, það skilaði sér með góðum sigri."
Fjarverandi:
Höskuldur Eiríksson, meiddur
Birkir Halldór Sverrisson, meiddur
Bjarki Gunnlaugsson, meiddur
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, meiddur
Þórður Guðjónsson :
,,Þetta verður örugglega mjög spennandi leikur. Þetta er mjög sterkt lið sem við erum að fara að mæta og vel skipað í alla staði. Þetta verður gríðarlega erfiður leikur fyrir okkur."
,,Við erum óánægðir með okkur eftir síðasta leik. Við megum þakka fyrir að hafa náð jafntefli úr þeim leik. Ætli það hafi ekki bara verið spennufall í liðinu. Það voru flest allir að leika langt undir getu svo við erum mjög óánægður með okkar frammistöðu."
,,Menn ætla að gera betur í kvöld en í síðasta leik það er alveg á hreinu. Enda er það þannig að ef við spilum svona aftur þá sleppum við ekki eins byrlega og við gerðum þá. Markvörðurinn stóð sig mjög vel í þessum leik og það er ekkert við hann að sakast. Þó hann hafi ekki náð að vera hérna í viku þá fellur hann vel inn í hópinn. Það tekur tíma, sérstaklega fyrir markvörð."
,,Það er mikil spenna hjá okkur. Ég held að möguleikarnir séu hjá báðum liðum, bæði lið hafa getu til að vinna hvort annað. Við ætlum að gera betur en í síðasta leik og vonandi dugir það til að ná allavega í stig."
,,Ég er sjálfur að skríða saman og verð á bekknum. Ég var góður í tíu mínútur í síðasta leik og vonandi verður það tvöfalt það núna."
Fjarverandi:
Jón Vilhelm Ákason, í leikbanni
Páll Gísli Jónsson frá keppni út sumarið
Uppákomur tengdar leiknum:
Stuðningsmenn FH hittast á Áttunni við Trönuhraun í Hafnarfirði fyrir leikinn.
Stuðningsmenn FH hittast á Áttunni við Trönuhraun í Hafnarfirði fyrir leikinn.

