Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 09:00
Fótbolti.net
Spá fyrirliða og þjálfara í 2.deild karla: 2. sæti
Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn Ólafsson
Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn Ólafsson
Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn Ólafsson
Mynd: Guðmundur Karl
Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í öðru sætinu voru Víðismenn sem fengu 195 stig af 242 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Víði.


2. Víðir
Búningar: Blá treyja, bláar buxur, bláir sokkar.
Heimasíða: http://vidirfc.blogcentral.is/

Suðurnesjaliðið er komið aftur í 2. deild eftir nokkurra ára dvöl í 3. deildinni. Víðir var á árum áður með gífurlega öflugt lið og lék í efstu deild fyrir tæpum tveimur áratugum síðast og eftirminnilegt er þegar liðið lék meðal annars til bikarúrslita en liðið féll úr efstu deild árið 1991.

Smám saman fjaraði undir hjá félaginu og árið 2004 féll liðið svo í 3. deild sem var mikið áfall fyrir félagið. Í fyrra þegar ákveðið var að fjölga liðum í 2. deild karla þá ákváðu Víðismenn að spýta í lófana. Fimm lið komust upp úr 3. deildinni og því var blásið í herlúðrana. Liðið réð Steinar Ingimundarson sem þjálfara liðsins og markmiðið var einfalt; upp um deild sama hvað það myndi kosta.

Steinar sýndi í fyrra nákvæmlega það sama og hann sýndi með lið Fjölnis í kringum aldamótin. Þar fór hann úr 3. deildinni og kom liðinu upp í 1. deild og ef spá fyrirliða og forráðarmanna rætist í haust þá er ljóst að honum hefur tekist að gera það sama með lið Víðis. Hann hefur nú þegar náð afar góðum árangri með liðið en hann fór alla leið með Víði í fyrra og liðið vann 3. deildina með glæsibrag eftir góðan sigur á Gróttu í úrslitaleik.

Steinar veit vel að hann þarf á sterkum leikmannahópi að halda þetta árið ætli liðið sér að gera tilkall til annars af tveimur sætunum sem gefur sæti í 1. deild að ári. Til að styrkja liðið ennfrekar fyrir sumarið hefur liðið fengið þrjá Serba sem munu án efa nýtast liðinu vel. Bojan Djordjevic, Bojan Jovanovic og Nebosja Stankovic gætu orðið sá biti sem vantar í púsluspilið til að fullmóta liðið fyrir komandi sumar.

Einnig hefur Steinar fengið nokkra unga stráka og meðal annars Þorstein Þorsteinsson, sem er bróðir Magnúsar Sverris Þorsteinssonar, framherja Keflavíkur. Það merkilega er eflaust að liðið heldur nánast öllum sínum mannskap frá því á síðustu leiktíð. Liðið er því ansi samhæft og mun það koma liðinu til góða í sumar.

Árangurinn í Lengjubikarnum var með miklum ágætum en liðið vann sinn riðil mjög örugglega þar sem liðið lagði meðal annars ÍR að velli. Fullt hús stiga og aðeins tvö mörk fengin á sig var uppskeran og í þokkabót skoraði liðið 23 mörk. Hvöt stöðvaði sigurgönguna með því að leggja liðið örugglega að velli í undanúrslitum en samt sem áður virðist Víðisliðið vera á réttri leið svona rétt fyrir mót. Undir stjórn Steinars Ingimundarsonar er alveg á hreinu að liðið mun vera í og við toppinn í haust.

Styrkleikar: Heimavöllur liðsins ætti að vera þeirra helsti styrkleiki en Garðsvöllur er einn af bestu völlum landsins. Það er skemmtileg umgjörð í Garðinum en þangað sækja fá lið auðveld stig. Baráttan og krafturinn er þeirra helsta aðalsmerki og mun það fleyta liðinu langt í sumar.

Veikleikar: Víðisliðið er heilt yfir mjög þétt en helsti veikleiki liðsins er eflaust hversu fljótir þeir eru að brotna við mótlæti. Vörn liðsins er ekki sú fljótasta og gæti það hrjáð liðinu eitthvað.

Þjálfari: Steinar Ingimundarson. Hefur sýnt það og sannað í gegnum tíðina að hann getur náð árangri. Sýndi það með Fjölni og ef einhver efaðist þá hefur hann þaggað niður í þeim sömu með árangri sínum hjá Víði.

Lykilmenn: Björn Bergmann Vilhjálmsson, Slavisa Mitic og Knútur Rúnar Jónsson.

Komnir: Bojan Djordjevic frá Serbíu, Nebosja Stankovic frá Serbíu, Bojan Jovanovic frá Serbíu, Þorsteinn Þorsteinsson frá Keflavík.

Farnir: Þórir Rafn Hauksson í Þrótt Vogum, Einar Valur Árnason í Njarðvík, Marko Gavrilóvic til Serbíu, Páll Marinó Jónsson í Þrótt Vogum,



Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ÍR 236 stig
2. Víðir Garði 195 stig
3. Höttur 186 stig
4. Afturelding 182 stig
5. Hvöt 176 stig
6. Reynir Sangerði 161 stig
7. Grótta 116 stig
8. Tindastóll 103 stig
9. Völsungur 73 stig
10. ÍH 67 stig
11. Magni 59 stig
12. Hamar 30 stig
Slapp
banner
banner