Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Á toppnum í þessari spá voru ÍR-ingar sem fengu alls 236 stig af 242 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um ÍR.
1. ÍR
Búningar: Hvít treyja, bláar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.ir-sport.is/
Árið 2008 hefur hingað til verið ár ÍR-inga. Liðið hefur hampað tveimur titlum undir stjórn Guðlaugs Baldurssonar og ef að líkum lætur mun sá þriðji láta sjá sig í haust. Vonbrigðin hafa verið gífurlega á undanförnum árum hjá ÍR og áföllin dundu yfir liðið síðasta sumar. Goðsögnin Ásgeir Elíasson féll frá og leikmenn liðsins virtust ekki jafna sig eftir fráfall hans og liðið sat eftir með sárt ennið á lokasprettinum. En eins og undanfarin ár þá gáfust Breiðhyltingar ekki upp. Félagið réð Guðlaug Baldursson sem þjálfara liðsins og var sú ráðning mikil lyftistöng. Undir hans stjórn hefur síðan liðið unnið tvo titla og ekki sér fyrir endann á velgengni liðsins undir hans stjórn.
Undirbúningstímabilið hefur verið lyginni líkast en liðið vann í byrjun mars Reykjavíkurmótið þegar liðið lagði Fram að velli í úrslitaleik. Ævintýrið var rétt að byrja því í byrjun mánaðarins lagði liðið Hvöt að velli í úrslitaleik Lengjubikarsins og annar titill liðsins var í höfn. Guðlaugur hefur unnið vel með þann hóp sem hann hafði í höndunum síðasta haust en hefur bætt við sig nokkrum leikmönnum.
Árni Freyr Guðnason kemur frá FH að láni en hann lék með Reyni á síðustu leiktíð. Árni er öflugur leikmaður sem gæti nýst liðinu vel. Hann er yngri bróðir Atla Guðnasonar, framherja FH. Einnig fékk Guðlaugur til sín Eyjólfur Fannar Eyjólfsson frá Fylki en hann er stór og stæðilegur varnarmaður. En fyrst of fremst ætlar Guðlaugur að treysta á þann mannskap sem var fyrir hjá félaginu. Sá mannskapur er klárlega í þeim gæðum að liðið ætti næsta örugglega að fara upp úr deildinni.
Það verður fyrst og fremst hlutverk Guðlaugs að koma sínum mönnum á jörðina áður en mótið hefst. Nánast allir spá liðinu upp um deild sem eðlilegt þar sem liðið er með langsterkasta mannskapinn í deildinni. Erfitt er að sjá eitthvað lið halda í við ÍR og því er ansi líklegt að baráttan verði helst um hvaða lið fylgir ÍR upp um deild þetta árið.
Mikið mun mæða á reynslumeiri leikmönnum liðsins í sumar. Baldvin Jón Hallgrímsson, Erlingur Jack Guðmundsson, Elvar Lúðvík Guðjónsson og Björn Viðar Ásbjörnsson verða að draga vagninn hjá liðinu í sumar. Einnig skiptir miklu máli fyrir liðið að Gunnar Hilmar Kristinsson verði í fínu standi en það munaði miklu fyrir liðið í fyrra þegar Gunnar fór í háskóla til Bandaríkjanna um miðjan ágúst. Eftir það gekk liðinu erfiðlega og á endanum sat liðið eftir með sárt ennið.
Styrkleikar: Leikmannahópur liðsins er einfaldlega styrkleiki ÍR-inga þetta árið. Hópurinn er breiður og hefur ekkert lið yfir jafn öflugum hópi að ráða og ÍR þetta árið. Liðið er vel skipulagt og afskaplega þétt.
Veikleikar: Helsti veikleiki liðsins í fyrra var sá að liðið tapaði stigum gegn liðunum í neðri hluta deildarinnar og má þá nefna tap gegn Magna á heimavelli. Liðið verður að halda stöðugleika í sumar ætli liðið sér upp um deild.
Lykilmenn: Baldvin Jón Hallgrímsson, Guðfinnur Þórir Ómarsson og Erlingur Jack
Þjálfari: Guðlaugur Baldursson. Sýndi styrk sinn sem þjálfari þegar hann þjálfaði ÍBV. Afar fær þjálfari og sýna tveir titlar hjá ÍR það greinilega. Bætir eflaust enn einni rósinni í hnappagat sitt þegar liðið kemst upp um deild.
Komnir: Árni Freyr Guðnason frá FH, Tómas Agnarsson frá KR, Eyjólfur Fannar Eyjólfsson frá Fylki.
Farnir: Arnar Hallsson hættur, Jakob Hallgeirsson í Skallagrím, Sigurður Heiðar Höskuldsson í Snæfell.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ÍR 236 stig
2. Víðir Garði 195 stig
3. Höttur 186 stig
4. Afturelding 182 stig
5. Hvöt 176 stig
6. Reynir Sangerði 161 stig
7. Grótta 116 stig
8. Tindastóll 103 stig
9. Völsungur 73 stig
10. ÍH 67 stig
11. Magni 59 stig
12. Hamar 30 stig


