Evrópukeppni félagsliða reyndist álíka skemmtileg keppni þetta árið og Meistaradeild Evrópu. Öskubuskuævintýri rússnesku meistarana í Zenit frá Pétursborg endaði með sigri liðsins á hinu fornfræga liði Glasgow Rangers frá Skotlandi 2-0 á Manchester Stadium í gærkveldi.
Það voru þeir Igor Denisov og Konstantin Zyrianov sem skoruðu mörk Zenit í seinni hálfleik en leikmenn rússneska liðsins voru miklu mun betri í leiknum og sköpuðu sér fleiri færi heldur en Skotarnir í Glasgow Rangers.
Rússarnir áttu sigurinn svo sannarlega skilinn, ekki einungis fyrir góða frammistöðu gegn Rangers í gær heldur var leið þeirra í úrslitaleikinn ekki sú einfaldasta.
Á vegi Zenit-manna voru mörg stórliðin í Evrópu, Villarreal, Marseille, Bayer Leverkusen og Bayern München áður en þeir unnu loks Rangers frá Skotlandi í úrslitum.

