Heimild: Heimasíða KR
Knattspyrnukonan sterka, Olga Færseth, var útnefnd íþróttamaður KR 2008 á aðalfundi KR sem haldinn var á þriðjudagskvöld.
Allar deildir KR tilnefndu afreksmenn til verðlaunanna en Olga hlaut útnefninguna og er vel að henni komin. Deildirnar tilnefna leikmenn að loknu keppnistímabili, knattspyrnan fyrir sumarið 2007 en körfuboltinn til dæmis fyrir veturinn 2007-2008. Þess vegna er Olga valin íþróttamaður ársins 2008 en ekki 2007.
Hún átti frábært tímabil með KR í fyrra þegar liðið varð VISA-bikarmeistari og endaði 2.sæti Landsbankadeildarinnar. Hún var fyrirliði liðsins og skoraði 16 mörk í 16 leikjum í Landsbankadeildinni. Hún varð í þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar og hlaut fyrir það bronsskóinn. Í haust var hún svo valin leikmaður ársins hjá kvennaliði KR.
Olga tilkynnti nú á dögunum að hún myndi leika áfram með KR í sumar en hún hefur lítið æft í vetur. Það er mikill styrkur fyrir KR-liðið að halda Olgu og verður forvitnilegt að sjá hvort að íþróttamaður KR 2008 nái að fylgja eftir frábæru knattspyrnusumri 2007.

