Heimild: Morgunblaðið
Heiðar Helguson leikmaður Boltonn í ensku úrvalsdeildinni gekkst undir aðgerð á ökkla í vikunni en þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Þetta er þriðja aðgerðin sem Heiðar fer í frá því í September en hann hefur lítið spilað með Bolton á þessari leiktíð vegna meiðsla.
Heiðar gekk í raðir Bolton frá Fulham fyrir leiktíðina sem var að klárast en átti erfitt uppdráttar sökum meiðsla.
,,Það tókst loksins að finna hvað þetta var. Það var bein ofan á hælbeininu sem þurfti að fjarlægja og þetta kom ekki í ljós fyrr en ég fór í ítarlega myndatöku fyrir síðustu helgi,“ sagði Heiðar við Morgunblaðið.
Læknar búast við því að Heiðar geti ekki byrjað að spila að nýju fyrr en eftir fjóra mánuði.


