Heimild: BBC
Þá er komið að helsta slúðrinu úr ensku blöðunum á þessum fína fimmtudegi en pakkinn er tekinn saman með hjálp frá BBC.
Liverpool ætlar að bjóða 10 milljónir punda í Florent Malouda kantmann Chelsea. (The Sun)
Martin O'Neill stjóri Aston Villa er að spá í að bjóða fimm milljónir punda í Steve Sidwell miðjumann Chelsea. (The Guardian)
Andriy Voronin framherji Liverpool gæti verið á leið til Bayer Leverkusen að nýju. (The Sun)
Andriy Shevchenko framherji Chelsea er á óskalista tyrkneska félagsins Fenerbache. (Daily Mirror)
Aston Villa er síðasta félagið sem hefur verið orðað við David Bentley. (Daily Express)
Jonny Evans varnarmaður Manchester United vonast til að geta farið til Sunderland á fimm milljónir punda en hann hefur verið í láni hjá félaginu. (Daily Express)
Charles N'Zogbia reifst við liðsfélaga sinn Abdoulaye Faye og framtíð hans hjá Newcastle er nú í hættu. (Daily Telegraph)
Tottenham hefur færst skrefi nær því að fá Carlos Kameni markvörð Espanol eftir að spænska félagið fékk Cristian Alvarez. (Daily Express)
Eftir fall niður í næstefstu deild gæti Reading misst Stephen Hunt, Nicky Shorey, Kevin Doyle og James Harper. (The Sun)
Aston Villa vonast til að fá Stephen Carr en hann var látinn fara frá Newcastle í síðustu viku. (Daily Mail)
Villa hefur einnig verið orðað við Diego hjá Werder Bremen og Bernd Schneider. (The Guardian)
West Ham er að fá Mark Bresciano frá Palermo á fjórar milljónir punda. (Daily Mail)
Amara Diane, leikmaður PSG, hefur áhuga á að fara til Newcastle en hann kostar um sex milljónir punda. (The Sun)
Lassana Diarra ætlar að vera áfram hjá Portsmouth en orðrómur hefur verið um að hann myndi yfirgefa félagið í sumar. (Daily Express)
Cardiff vonast til að fá Michael Chopra aftur frá Sunderland. (Daily Mirror)
Middlesbrough ætlar að reyna að fá James Beattie framherja Sheffield United. (The Star)
Harry Redknapp stjóri Portsmouth hefur greint frá því að hann muni mögulega yfirgefa félagið eftir úrslitaleik enska bikarsins á laugardag. (Ýmsir miðlar)
Samuel Eto´o framherji Barcelona hefur áhuga á að leika í ensku úrvalsdeildinni. (Daily Express)
Didier Drogba talaði við bæði Lyon og AC Milan fyrr á ferli sínum hjá Chelsea. Hann ákvað hins vegar að vera áfram í Lundúnum. (Daily Express)
Michael Laudrup mun líklega taka við Manchester City ef Sven-Goran Eriksson yfirgefur félagið. (The Sun)
Avram Grant stjóri Chelsea hefur sakað Steve Bennett dómara um að hafa afhent Manchester United titilinn (Ýmsir miðlar)


