Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 10:35
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Rio Ferdinand búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning
Rio Ferdinand leikmaður Manchester United hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið eða til ársins 2013.

Ferdinand hefur sannað sig sem einna f lykilmönnum eftir að hafa komið frá Leeds fyrir 30 milljónir punda og hefur samstarf hans og Nemanja Vidic í hjarta varnarinnar verið frábært.

,,Manchester United er frábært félag og ég er ánægður með hafa skrifað undir nýjan samning," sagði Ferdinand.

,,Það er mikill heiður að vera hluti af félagi sem vinnur marga titla og ég er viss um að þetta mun halda áfram næstu tímabil."

,,Ég vil þakka stjóranum, þjálfara teyminu, leikmönnunum, og stuðningsmönnunum fyrir frábæran stuðning frá því ég kom hingað."

Slapp
banner
banner
banner