Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 11:25
Magnús Már Einarsson
Leikur Magna og Tindastóls fer fram á möl
Úr leik á grasvellinum á Grenivík.  Hann er ekki klár í slaginn og því verður leikið á mölinni á morgun.
Úr leik á grasvellinum á Grenivík. Hann er ekki klár í slaginn og því verður leikið á mölinni á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Stefán Pálmason
Fyrsta umferðin í annarri deild karla fer fram annað kvöld en þar vekur athygli að Magni og Tindastóll munu mætast á malarvellinum á Grenivík.

Lítið sem ekkert hefur verið um það að spilað hafi verið á möl á Íslandsmótinu undanfarin ár en það verður þó gert á morgun þar sem grasvöllurinn á Grenivík er ekki klár í slaginn.

,,Grasið hjá okkur er ekki til og við gátum ekki skiptst á leikjum því að grasið er ekki til hjá þeim," sagði Reimar Helgason framkvæmdastjóri Magna við Fótbolta.net.

,,Það er nú engin gleði hjá okkur með þessa ákvörðun en við búum víst við þessar aðstæður að hér er snjór á veturnar og veturinn og vorið hefur verið okkur erfitt þannig að við getum talist heppnir ef grasvöllurinn verður til um mánaðarmótin."

,,Menn verða líka að gera sér grein fyrir því að margir af þessum grasvöllum sem verið er að spila á um miðjan maí eru nú ekki mjög boðlegir til knattspyrnuiðkunnar því að þeir eru oft mjög ósléttir og mjúkir,"
sagði Reimar.
Slapp
banner