Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 12:03
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Heimasíða Reynis 
Magnús Ólafsson og Ólafur Ívar í Reyni Sandgerði (Staðfest)
Magnús í leik með ÍR síðasta sumar.
Magnús í leik með ÍR síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir Sandgerði hefur fengið liðstyrk því þeir Magnús Ólafsson og Ólafur Ívar Jónsson hafa skrifað undir samninga við félagið.

Ólafur Ívar er að taka skóna af hillunni en hann lék með Reyni í 2. deildinni sumarið 2006 en liðið féll úr 1. deildinni í fyrra.

Magnús kemur frá ÍR en þessi 35 ára gamli framherji skoraði níu mörk í tíu leikjum með ÍR síðasta sumar og þar af fimm mörk í leik gegn Sindra í upphafi móts.

Hann kom til ÍR-inga fyrir síðustu leiktíð eftir að hafa verið á mála hjá Njarðvík og Keflavík.

Árið 2001 varð hann markahæstur í annarri deild með 23 mörk í 18 leikjum með Haukum og í kjölfarið fór hann í KR þar sem hann varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2002.
Slapp
banner