Hvöt í annarri deild hefur fengið bosnískan framherjann Mirnes Smajlovic til liðs við sig og mun hann koma hingað til lands um helgina. Smajlovic, sem er 26 ára, hefur verið að leika í fyrstu deild í heimalandi sínu og þykir sterkur framherji.
Hann mun missa af fyrsta leik Hvatar, gegn Völsungi annað kvöld, en hann ætti að ná leik liðsins gegn ÍR í næstu viku.
Varnarmaðurinn Ingvar Rafn Stefánsson og miðjumaðurinn Jóhann Örn Jónsson hafa einnig komið til Hvatar frá Fjarðabyggð.
Þá hefur Hvöt einnig fengið Sigurjón Jónsson frá Augnablik en hann getur leyst ýmsar stöður á vellinum.
Sigurjón mun koma til landsins eftir helgi en hann er sem stendur í skóla í Bandaríkjunum.



