Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 16. maí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Boðið upp á afreksíþróttasvið í Borgarholtsskóla
Bjarni Jóhannsson er verkefnisstjóri brautarinnar.
Bjarni Jóhannsson er verkefnisstjóri brautarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Sigurðsson er á meðal þjálfara.
Helgi Sigurðsson er á meðal þjálfara.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Frá og með haustönn 2008 verður boðið upp á afreksíþróttasvið í Borgarholtsskóla í Grafarvogi þar sem meðal annars verður í boði knattspyrnu. Nemendur á afreksíþróttasviði geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er en einnig er boðið upp á körfuknattleik

Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Fjórar námseiningar á önn en einingarnar bætast við þær einingar sem eru til stúdentsprófs.

Æfingar fara fram í Egilshöll en yfirþjálfari karla verður Kristinn R Jónsson, þjálfari U-19 karla og honum til aðstoðar verður Helgi Sigurðsson framherji Vals.

Íris Björk Eysteinsdóttir aðstoðarþjálfari U-17 kvenna verður yfirþjálfari kvenna á afreksbrautinni og Margrét Lára Viðarsdóttir, íþróttamaður ársins, verður henni til aðstoðar.

Strákar og stelpur munu æfa í sitthvoru lagi en reynt er að hafa æfingarnar eins einstaklingsmiðaðar og kostur er og reynt verður að hafa álíka mikinn fjölda af strákum og stelpum á brautinni.

Nemendur fá þrjár æfingar á viku á skólatíma. Auk þess er eitt helgarnámskeið á hverri önn þar sem lögð er áhersla á ýmsar stoðgreinar sem nýtast afreksíþróttafólki þar sem er meðal annars farið í næringafræði, íþróttasálfræði, íþróttalíffræði, framkomu í fjölmiðlum og lauslega í aðrar íþróttir.

Kröfur til nemenda:
Hafi stundað íþrótt sína í nokkur ár og verið virkur iðkandi í íþróttafélagi
Hafi staðist grunnskólapróf
Sé vímuefnalaus íþróttamaður
Geti tileinkað sér hugarfar og lífsstíl afreksíþróttamanns
Standist eðlilega námsframvindu og ljúki u.þ.b. 15- 19 einingum á önn
Hafi a.m.k. 95% skólasókn

Í lokin á hverri önn fer hver leikmaður í árangurspróf og fær eftir það afrekspróf en farið er í þolpróf, hraðapróf, liðleikapróf, styrktarpróf, tæknipróf, persónuleikapróf.

Efnisgjald fyrir afreksíþróttasvið á haustönn 2008 er kr.25.000. Inni í efnisgjaldi er meðal annars fatnaður sérmerktur Borgarholtsskóla.

Nemendur sækja um bóknámsbraut rafrænt.
Umsóknareyðublað má nálgast hér eða á skrifstofu skólans.
Skil á umsóknum er frá 14. maí – 11.júní

Allar nánari upplýsingar veitir
Bjarni Jóhannsson
Verkefnisstjóri afreksíþrótta BHS
Sími 896 8566
[email protected]
Slapp
banner
banner