Félagaskiptaglugginn hér á landi mun loka á miðnætti í kvöld en þetta er í fyrsta skipti sem glugginn lokar á þessum tíma.
Gluggin mun svo aftur opna eftir tvo mánuði eða þann 15. júlí
Ný reglugerð um félagaskipti, samninga, stöðu leikmanna og félaga tók gildi 1. júli á síðasta ári og þar hafa verið gerðar veigamiklar breytingar er varða félagaskipti.
Félög geta ekki lánað leikmenn eftir 15. maí en hægt er að kalla leikmenn til bara úr láni, þ.e. leikmenn sem eru á tímabundnum félagaskiptum, eftir þennan tíma. Það er þó aðeins hægt ef liðinn er lágmarkstími tímabundinna félagaskipta sem er einn mánuður.


