Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 11:51
Hafliði Breiðfjörð
Salih Heimir Porca: Skandall ef Valur og KR lenda í vandræðum
Salih Heimir Porca.
Salih Heimir Porca.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Salih Heimir Porca þjálfari Keflavíkurstúlkna er ósáttur við að þjálfarar KR og Vals séu að gera of mikið úr sínu liði og bendir á að hann hafi ekki styrkt liðið frá síðustu leiktíð heldur hafi þrír af sex útlendingum sem voru hjá liðinu á síðustu leiktíð yfirgefið liðið.

Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Vals var í viðtali í 24 stundum í dag þar sem hún sagði Keflavík og Aftureldingu geta sett strik í reikninginn hjá stóru félögunum. ,,Bæði hafa styrkt sig mikið, ekki síst Keflavík sem hefur fengið til sín reyndar stelpur og fyrir var hópurinn góður," sagði Elísabet í 24 stundum en Porca er ekki sáttur við þau ummæli hennar.

,,Keflavík er að byggja liðið upp á heimamönnum fyrir utan þrjár serbneskar stúlkur. Við höfum misst þrjá útlendinga frá síðustu leiktíð og eini nýji leikmaðurinn er Linda Rós Hákonardóttir sem kom á láni frá Val," sagði Salih Heimir Porca í samtali við Fótbolta.net í dag og benti á að Karitas S. Ingimarsdóttir sem kom einnig til félagsins frá BÍ hafi ekki verið í hóp gegn Keflavík þó hún sé meðal leikmanna hans.

,,Við vorum með sex útlendinga í fyrra og ég tel það of mikið því ég verð að koma heimamönnum og uppöldum stúlkum að í liðinu. Þessar þrjár erlendu sem eru enn hjá félaginu hafa verið lengi hjá okkur, Vesna Smiljkovic hefur verið hér í fjögur ár, Danka Podovac í þrjú og Jelena Petrovic í tvö."

,,Valur og KR eru með 30 landsliðskonur og þegar KR skipti manni af velli í síðasta leik settu þær Olgu Færseth inná sem varamann en þegar við skiptum inná var varmaðurinn okkar leikmaðurinn úr þriðja flokki. Keflavík ætlar að byggja liðið upp á heimamönnum og við erum á góðri leið með það. Í fyrra vorum við í grunnskóla, núna erum við í menntaskóla og á næsta ári verðum við í háskóla."

,,Það er meiri grimmd í okkur í ár og við ætlum að berjast, ég hef sagt að við ætlum að taka stig af stóru liðunum og ég gerði það bara til að herða mína leikmenn, til að fá sjálfstraust í liðið. Auðvitað geri ég það, hver vill ekki taka stig af Val og KR? Og hvernig á að gera það, nú með baráttu."


,,Við erum að reyna að æfa meira og erum sterkari og ætlum að mæta þesum stóru liðum af grimmd. Við vitum að við erum ekki með þessu stóru nöfn og landsliðskonur í okkar liði og erum bara að reyna að ala upp okkar eigin leikmenn og vonum að í framtíðinni komi sterkir leikmenn frá okkur.

,,Þær verða að líta í eigin barm en ekki bara benda á okkur. Ég veit ekki hvað þær eru að gera með því að setja þessa spennu á okkur. Við eigum ekkert erindi í toppbaráttuna, við ætlum samt að mæta öllum liðum með sömu hörku, hvort sem það sé Valur, Fylkir eða eitthvað annað lið."

,,Ég tel að við getum aldrei endað í 1. eða 2. sæti en við gætum barist í þriðja sæti. Það væri skandall ef Valur eða KR myndu lenda í vandræðum með allar þessar landsliðskonur. Nefndu eina í þessum liðum sem er ekki landsliðskona, annaðhvort sem var það, er í dag eða er í úrtökum."

Slapp
banner
banner