Arna Sif Ásgrímsdóttir, Freyja Rúnarsdóttir og Rakel Óla Sigmundsdóttir undirrituðu nýja samninga um helgina við Þór/KA sem gilda til loka ársins 2009
Rakel Óla Sigmundsdóttir er 23 ára og er lykilleikmaður í liði Þór/KA. Hún hefur spilað 81 leik með meistaraflokki og skorað í þeim 14 mörk.
Arna Sif er einungis 16 ára en hún spilaði 12 leiki með Þór/KA síðasta sumar og skoraði í þeim 2 mörk.
Freyja Rúnarsdóttir er 19 ára og hefur spilað 14 leiki í meistarflokki Þór/KA og hefur skorað í þeim 2 mörk.
Allir þrír samningarnir eru til 2 ára og gilda til loka ársins 2009.
Núna fyrr í maí skrifuðu aðrir þrír leikmenn einnig undir 2 ára samninga við Þór/KA þær Alexandra Tómasdóttir, Eva Björk Benediktsdóttir og Iunn Eir Gunnarsdóttir. Þór/KA hefur því gert samninga við 6 leikmenn á stuttum tíma.




