Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 12:20
Hafliði Breiðfjörð
Tvær Bandarískar stúlkur ganga í raðir Breiðabliks
Kvenaboltinn
Úr leik Breiðabliks í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar gegn Aftureldingu.
Úr leik Breiðabliks í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar gegn Aftureldingu.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Kvennalið Breiðabliks hefur fengið liðsstyrk nú undir lok félagaskiptagluggans því tvær stúlkur hafa gengið til liðs við félagið frá Bandaríkjunum en reyndar mun önnur þeirra aðeins stoppa stutt við hér á landi.

Önnur þeirra er markvörður og heitir Carrie Ann Revlett. Fyrir hjá Blikunum er markvörðurinn Elsa Hlín Einarsdóttir sem kom frá Þrótti í vetur en Petra Lind Sigurðardóttir er frá allt tímabilið vegna meiðsla. Revlett er þegar komin með leikheimild hjá Breiðablik.

,,Ég er reyndar bara búin að sjá hana á einni æfingu en hún er fínn leikmaður," sagði Vanda Sigurgeirsdóttir þjálfari Breiðabliks við Fótbolta.net í dag. ,,Það er vonlaust að vera bara með einn markmann. Í fyrsta lagi þarf samkeppni hjá markvörðunum eins og öðrum leikmönnum og svo er það bara leiðinlegt á æfingum að hafa bara einn markmann," bætti hún við.

Hinn leikmaðurinn heitir Michelle Royal og stoppar stutt við hér á landi. Hún er aðstoðarþjálfari í háskólaliði í Bandaríkjunum sem heitir TCU og er í Texas.

,,Hún er að gera tvennt hérna. Hún er annarsvegar komin til að spila og æfa og hún er líka að koma til að kynna sér þjálfun og íslenskan fótbolta," sagði Vanda. ,,Ég er bara búin að sjá hana einu sinni og á því mjög erftt með að tala um hvernig leikmaður hún er. Hún spilaði á miðjunni þegar hún var sjálf í háskóla en ég held að hún eigi að geta spilað víðar en það."

Þriðji leikmaðurinn hafði fengið leikheimld hjá Breiðablik, Michelle K Houten, en hún fer aftur frá félaginu í dag og verður því ekki með liðinu í sumar. Auk þess fékk 18 ára stúlka, Hrefna Ósk Harðardóttir, félagaskipti í Breiðablik en hún fer í 2. flokkinn hjá félaginu. Vanda telur mikilvægt að breyta liði sínu ekki mikið heldur byggja það á þeim ungu leikmönnum sem eru fyrir hjá Breiðablik

,,Aðalmálið er að halda því áfram sem ég hef verið að tala um, að gefa þessu unga og efnilega liði tækifæri á að spila," sagði hún. ,,Þó ég gæti fallið í þá freistni að styrkja liðið þá vil ég ekki gera það. Ég vil að þesssar stelpur fái reynslu og að þær fái að spila. Þó það sé alltaf mikilvægt að hugsa um næsta leik finnst mér að í þessu tilfelli eigi ég að hugsa um framtíðina. Þær eru mjög efnilegar."

,,Breiðablik prófaði hitt fyrir nokkrum árum síðan og það virkaði ekkert voðalega vel og þeir leikmenn sem þá voru fengnir til liðsins eru allir farnir. Svo hafa margar af Blikunum hætt því þær gáfust upp á þessu tímabili. Það er kominn tími til þess með þennan hóp að fara hina leiðina, gefa þeim tækfæri og missa okkur ekki þó það náist ekki sigrar í öllum leikjum."

Slapp
banner
banner
banner