Heimild: Heimasíða HK
Nýliðar HK/Víkings hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi baráttu í Landsbankadeildinni en Marina Nesic, landsliðskona frá Serbíu er komin til liðsins.
Marina er tvítug og leikur sem miðjumaður eða framherji. Hún hefur leikið með serbneska landsliðinu að undanförnu, meðal annars gegn Íslandi á Laugardalsvellinum í fyrra.
Marina hefur þegar fengið leikheimild með liðinu en óvíst er hvort hún verði komin til landsins fyrir næsta leik sem er gegn Íslandsmeisturum Vals á sunnudaginn.
Fyrir hjá HK/Víkingi hittir Marina þær Lidiju Stojkanovic og Jovönu Cosic en þær eru einnig frá Serbíu.


