Það verður athyglisvert einvígi á Kópavogsvelli í kvöld þegar Michael Jackson og Prince mætast í einvígi sem gæti orðið athyglisvert að fylgjast með.
Ekki er þó um að ræða popptónlistar mennina vinsælu sem hafa í gegnum árin selt plötur í bílförum um allan heim og áttu þegar mest lét einhverja stærstu aðdáendahópa sem um getur í tónlistinni.
Að þessu sinni eru það nafnar þeirra sem eigast við í leik Breiðabliks og Þróttar í annarri umferð Landsbankadeildar karla en leikurinn hefst klukkan 19:15 á Kópavogsvelli.
Hollendingurinn Prince Rajcomar er framherji í liði Breiðabliks og þykir gífurlega skeinuhættur fyrir framan mark andstæðinganna og þegar svo er er ljóst að það dugir enginn aukvisi til að stöðva þannig mann.
Því setja Þróttarar gegn honum varnarmanninn enska Michael Jackson sem sló í gegn í 1. deildinni í fyrrasumar þar sem hann lék í miðvarðarstöðunni með liðinu.
Ljóst er að þó báðir leikmennirnir séu mjög eftirtektarverðir er líklega fátt líkt með þeim og poppstjörnunum nema nafnið. Gunnar Oddsson þjálfari Þróttar sagði einmitt á léttu nótunum við Fótbolta.net í lok síðasta mánaðar að nafnið hefði getað komið sér vel
,,Við stöldruðum við nafnið fyrst en ef hann hefði ekki getað neitt í fótbolta þá hefðum við getað auglýst tónleika og staðið á því að það væru tónleikar með Michael Jackson og hefðum örugglega getað selt mikið af miðum án þess að þurfa að endurgreiða þá," sagði Gunnar í viðtali við Fótbolta.net í apríl.



