Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 15:37
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: BBC 
Wigan leysa Skoko og Olembe undan samningi
Wigan hafa leyst miðjumennina Josip Skoko og Salomon Olembe undan samningi frá félaginu.

Skoko sem er frá Ástralíu er 32 ára gamall en hann hefur leikið 53 leiki með Wigan frá því hann kom frá tyrkneska liðinu, Genclerbirligi árið 2005.

Olembe sem er frá Kamerún spilaði aðeins nýju leiki fyrir félagið en hann kom til liðsins í fyrra.

Wigan hélt enn á ný sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni en liðið lék vel undir lokin með Steve Bruce í brúnni.
Slapp
banner
banner