Aðdáandi Zenit var fluttur á spítala eftir að hann var stunginn fyrir utan City of Manchester Stadium þegar úrslitaleikurinn í Evrópukeppni félagsliða fór fram þar í gærkveldi.
Vandræðin urðu hvað mest þegar að risastór sjónvarpskjár sem átti að sýna leikinn bilaði skyndilega en fjölmargir aðdáendur Rangers sem ekki höfðu miða á völlinn ætluðu sér að horfa á leikinn á risaskjánum.
Óeirðarlögreglan í borginni var kölluð á vettfang og margir stuðningsmenn Rangers sem höfðu setið í marga klukkutíma við drykkju voru til vandræða, en þeir köstuðu öllu lauslegu í átt að lögreglunni.
Hægt er að skoða myndband hér fyrir neðan af þessari uppákomu:
Smelltu hér til að sjá myndband á Reuters af slagsmálunum í Manchester.



