Haukar hafa fengið Hilmar Trausta Arnarsson frá Leikni Reykjavík en bæði þessi lið leika í fyrstu deild.
Hilmar Trausti gekk til liðs við Leikni fyrir tæpu ári síðan en hann kom til liðsins frá Keflavík.
Þessi 22 ára gamli leikmaður er hins vegar uppalinn hjá Haukum en hann lék síðast níu leiki með liðinu í fyrstu deildinni 2006.
Hilmar Trausti hefur þegar fengið leikheimild með Haukum og getur því leikið með liðinu gegn Fjarðabyggð í annarri umferð fyrstu deildar á sunnudag.



