Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 16. maí 2008 11:23
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Dos Santos, Arruda og Negri í ÍBV (Staðfest)
Kvenaboltinn
Jón Ólafur þjálfari ÍBV.
Jón Ólafur þjálfari ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Aline Areas Dos Santos, Katya C Arruda og Maira O Negri hafa allar gengið til liðs við 1.deildarliðs ÍBV. Dos Santos er 26 ára, Arruda er 24 ára og O Negri er 26 ára.

Við spjölluðum við Jón Ólaf Daníelsson þjálfara ÍBV nýju leikmennina.
Eru leikmennirnir komnir til landsins?
"Nei þeir eru ekki komnir til landsins en við erum búin að fá leikheimild á þær. Við erum að vinna í því að fá þær til landsins og vonumst til að þær verði komnar í næstu viku. "

"Aline Areas Dos Santos er 26 ára varnarmaður, Katya C Arruda er 24 ára framherji og Maria O Negri er 26 ára markvörður. Ég hef ekki séð leikmennina sjálfur en góðkunningi minn vann þetta fyrir mig og fann þessar stelpur. Ég treysti honum að þetta séu frambærilegir leikmenn".

Aðspurður út í leikmannahópinn og hvort stefnan væri ekki sett á Landsbankadeildina á næsta ári hafði Jón þetta um málið að segja:
"Í meistaraflokk og 2.flokki erum við með samanlagt 28 leikmenn. Það er í sjálfu sér engin stefna að fara strax upp í Landsbankadeildina. Við ætlum bara að halda sjó og taka púlsinn á því í haust. Að sjálfsögðu verður stefnum við að fara upp ef staðan yrði þannig að við værum í séns undir lok sumars. En í sumar ætlum við bara að byggja upp gott lið og sjá hvað setur."


Fyrsti leikur á Íslandsmótinu er laugardaginn 24 maí gegn ÍA á Hásteinsvelli. Verða nýju leikmennirnir klárir þá?
"Ég vona það, eins og ég sagði þá erum við að vinna í því að koma þeim til landsins. Það væri frábært að hafa þær í fyrsta leik."
Slapp