Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 16:06
Gunnar Gunnarsson
Heimild: Heimasíða Barcelona 
Eiður byrjaður að æfa aftur eftir lítilsháttar meiðsli
Eiður Smári Guðjohnsen gat tekið þátt í venjulegri æfingu hjá Barcelona bæði í dag og í gær en liðið undirbýr sig nú fyrir síðasta deildarleik tímabilsins gegn Real Murcia.

Allt lítur út fyrir að Eiður sé búinn að jafna sig á meiðslunum sem urðu þess valdandi að hann þurfti að fara af leikvelli í leiknum gegn Real Madrid fyrir rúmri viku síðan.

Barcelona þarf nauðsynlega á sigri að halda gegn Murcia ætli þeir sér að halda þriðja sætinu í deildinni en Atletico Madrid sækir hart á þá.

Töluvert er um meiðsli hjá Börsungum, Edmílson, Deco, Márquez og Zambrotta eru allir mjög tæpir fyrir leikinn á laugardagskvöldið.

Yaya Toure verður einnig frá í 6 til 8 vikur vegna meiðsla, auk þess sem það er ljóst að Gabriel Milito verður frá í allt að 6 mánuði eftir að hann sleit krossband gegn Manchester United.

Eiður ætti því að eiga ágætis möguleika á að fá tækifæri gegn Murcia um helgina miðað við þennan langa meiðslalista.
Slapp
banner
banner