Heimild: Sky
Cristiano Ronaldo leikmaður Manchester United segir að hann verði að vinna Meistaradeild Evrópu til að vera sá besti í heimi.
Ronaldo á góðan möguleika á því að vinna Meistaradeildina en hann og félagar hans mæta Chelsea í úrslitum í næstu viku.
,,Ég hef verið mjög hissa á því hversu mörg mörk ég hef skorað og ég er ekki framherji," sagði Ronaldo.
,,Til að vera bestur í heimi þarf maður að vinna titla eins og Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina."
,,Ég er sigurvegari og ég á mér draum um að vinna tvöfalt á þessari leiktíð, það væri draumur ef það gerist og af hverju getum við það ekki?"
,,Það er aldrei auðvelt að vinna neitt, sérstaklega ekki Meistaradeildina, ef þú vinnur hana þá held ég að þú munir skoða þetta í framtíðinni og það vil ég," sagði Ronaldo að lokum.



