Eins og fram hefur komið í kynningu okkar um Fjölni átti liðið að fá til sín þrjár stúlkur frá Bandaríkjunum. Stúlkurnar heita Kimberly A Lisun, Kristin L Sotak og Kristin R Hextall og eru allar 22 ára.Þær fengu allar leikheimild í gær og komu til landsins í morgun og eru því klárar í slaginn í næsta leik Fjölnis sem verður gegn Stjörnunni á Stjörnuvelli sunnudaginn 18.maí.
Þetta er gríðarlega mikill liðsstyrkur fyrir liðið sem tapaði sínum fyrsta leik á þriðjudaginn 2-0 á móti Fylki í Landsbankadeild kvenna.
Þetta er gríðarlega mikill liðsstyrkur fyrir liðið sem tapaði sínum fyrsta leik á þriðjudaginn 2-0 á móti Fylki í Landsbankadeild kvenna.
Við spurðum Theódór Sveinjónsson þjálfara Fjölnis út í nýju leikmennina
“Þær komu bara í morgun og það er fyrsta æfing á eftir. Ég hef ekki séð nema eina þeirra á myndbandi en hef fengið góð meðmæli um hinar tvær. Ég er með mann í þessu sem vann að því að finna fyrir mig leikmenn og hann þekkir markaðinn í Bandaríkjunum. Ég hlakka mikið til að sjá þær á æfingu í dag”
Aðspurður hvort þær myndu allar spila 18.maí á móti Stjörnunni sagði hann
“Þær koma allar til með að spila á móti Stjörnunni á sunnudaginn ef þær komast í liðið!”



