Grindvíkingar hafa fengið króatíska markvörðinn Zankarlo Simunic til liðs við sig.
Simunic, sem er 35 ára gamall, leikur með Polonia í Póllandi og hann er samningsbundinn því liði út júní.
Grindvíkingar vonast hins vegar til að hann nái að losa sig undan samningi og verði klár í slaginn fyrir leikinn gegn Fjölni á mánudag.
Simunic mun berjast við Magnús Þormar og Óskar Pétursson um markvarðarstöðuna hjá Grindvíkingum.
Grindvíkingar hafa hins vegar ekki ennþá fengið leikheimild fyrir framherjann Gilles Mbang Ondo en óvíst er hvort það náist áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti.
Grindvíkingar urðu einnig fyrir áfalli í leiknum í gær en varnarmaðurinn Zoran Stamenic varð þá að fara meiddur af velli og meiðsli hans líta ekki vel út.
Þá lánuðu Grindvíkingar tvo unga leikmenn frá sér í dag en varnarmennirnir Áslaugur Andri Jóhannsson og Ólafur Daði Hermannsson, sem eru báðir á tuttugasta aldursári, hafa farið til Þrótt Vogum á láni.



