Pálmi Haraldsson fyrrum leikmaður ÍA hefur fengið félagaskipti yfir í sitt gamla félag frá Kára.
Pálmi lagði skóna á hilluna margfrægu árið 2006 en lék með Kára í 3. deildinni síðasta sumar.
Pálmi sem er á 34 aldursári hefur þó ekki enn hafið æfingar með ÍA. ,,Hann er bara svona tiltækur eins og það heitir," sagði Gísli Gíslason formaður rekstarfélags ÍA.
,,Hann hefur ekki verið að æfa með okkur en hefur verið að æfa sjálfur og halda sér í formi þannig að það er aldrei að vita hvað gerist," sagði Gísli.
Hann á að baki hátt í 500 leiki með Skagamönnum og var einn af lykilmönnum liðsins á árum áður.

