Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 21:20
Andri Fannar Stefánsson
BEINT- Landsbankadeildin - Fimm leikir í beinni
Heimir og Guðjón ræða málin í kvöld.
Heimir og Guðjón ræða málin í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður hart barist í kvöld.
Það verður hart barist í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Stuðningsmenn ÍA fylgjast spenntir með leik ÍA og FHinga í Krikanum.
Stuðningsmenn ÍA fylgjast spenntir með leik ÍA og FHinga í Krikanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Gunnleifur fór meiddur af velli. Það eru slæm tíðindi fyrir HK-menn enda Gunnleifur verið lykilmaður hjá þeim.
Gunnleifur fór meiddur af velli. Það eru slæm tíðindi fyrir HK-menn enda Gunnleifur verið lykilmaður hjá þeim.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Ívar Björnsson skoraði annað mark Frammara.
Ívar Björnsson skoraði annað mark Frammara.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Fyrsta markið skoraði Heiðar Geir.
Fyrsta markið skoraði Heiðar Geir.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Gummi Steinars skoraði með þrumuskoti.
Gummi Steinars skoraði með þrumuskoti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fimm leikir fara fram í Landsbankadeildinni í kvöld og munum við fylgjast með öllum leikjunum hér í beinni textalýsingu

Við munum byrja að færa ykkur tíðindi af byrjunarliðunum um leið og þau berast okkur.



Leikir dagsins:
Allir nema FH - ÍA hefjast klukkan 19:15 en hann er í beinni á Stöð2 Sport.

19:15 Fram 2 - 0 HK (Laugardalsvöllur)
1-0 Heiðar Geir Júlíusson (47)
2-0 Ívar Björnsson (65)

19:15 Fjölnir 2 - 1 KR (Fjölnisvöllur)
1-0 Guðjón Baldvinsson (28)
1-1 Ásgeir Aron Ásgeirsson (33)
2-1 Gunnar Már Guðmundsson (Víti)

19:15 Breiðablik 0 - 0 Þróttur R. (Kópavogsvöllur)
19:15 Keflavík 2 - 1 Fylkir (Sparisjóðsvölllurinn)
1-0 Hólmar Örn Rúnarsson (20)
2-0 Guðmundur Steinarsson (48)
2-1 Andres Jóhannesson (88)
20:00 FH 2 - 0 ÍA (Kaplakrikavöllur) Beint á Stöð2 Sport
1-0 Davíð Þór Viðarsson (75)
2-0 Matthías Guðmundsson (90)


Við þökkum fyrir okkur hér úr beinni útsendingu en inn á vefinn koma síðar í kvöld, umfjallanir, viðtöl, myndir og fleira.

21:53 Jæja það tókst að stilla til friðar og er leiknum lokið með 2-0 sigri heimamanna.

21:52 Það er allt að fjúka í bál og brand! Slagsmál að brjótast út á vellinum...

21:51 MARK! Ætli Matthías Guðmundsson hafi ekki innsiglað sigurinn með marki á 90. mínútu eftir sendingu frá nafna sínum Vilhjálmssyni.

21:39 Það voru 1927 manns sem lögðu leið sína í Kaplakrikann í dag en það er meira en helmingi fleiri en voru á leik Vals og Grindavíkur.

21:34 MARK! Davíð Þór Viðarsson kemur FH-ingum yfir með skoti úr teignum eftir að Esben Madsen hafði bjargað.

21:30 Andri stimplar sig inn með skoti í stöng eftir góða sendingu frá Stefáni Þórðarsyni.

21:23 Andri Júlíusson kemur inn fyrir Björn Bergmann.

21:17 Eftir tólf mínútna leik í síðari hálfleik fékk Atli Viðar Björnsson boltann í teig en hitti ekki boltann.

21:08 Þeim fjórum leikjum sem byrjuðu 19:15 er lokið en nú beinast augu okkar að Kaplakrikanum þar sem Heimir Guðjónsson mætir fyrrum læriföður sínum - Gaua Þórðar!

21:05 Markalaust jafntefli staðreynd í Kópavoginum. Leik lokið.

21:05 Guðmundur Magnússon kemur inn fyrir Auðun Helga hjá Fram.

21:05 Búið að flauta til leiks í FH - ÍA. Síðari hálfleikur að hefjast.

21:03 MARK! Það eru tíðindi úr Grafarvoginum! Dæmd var vítaspyrna á Grétar Sigfinn Sigurðarson og Gunnar Már skoraði af öryggi og tryggði Fjölnismönnum 2-1 sigur en leik er lokið. Það munar ekki um það.

21:01 Jæja allt kom fyrir ekki í Keflavík og er búið að flauta til leiksloka, lokatölur 2-1 og fá Keflavík þrjú stig í sarpinn en Fylkismenn eru enn án stiga.

21:00 Það er allt að gerast greinilega í Keflavík. Heimamenn nálægt því að skora sjálfsmark en þeim mistókst að hreinsa skot frá og fór boltinn rétt framhjá. Stuttu síðar vildu Fylkismenn fá vítaspyrnu en það er komið fram í uppbótartíma.

20:58 MARK! Andrés Már Jóhannesson nær að minnka muninn fyrir Fylki með marki af dýrari gerðinni. Þeir fengu aukaspyrnu vinstra megin við vítateig Keflavíking, heimamenn skölluðu frá og barst boltinn til Andrésar sem þrumaði boltanum glæsilega upp í þaknetið.

20:57 Þorvaldur Örlygsson gerir breytingu á sínu liði sem er með 2-0 sigur í höndunum gegn HK. Jón Orri Ólafsson kemur inn en Paul McShane út.

20:57 Guðjón Árni Antoníusson fær gult spjald fyrir brot í Keflavík á 87. mínútu.

20:56 Það stefnir allt í steindautt jafntefli í Kópavoginum en það fer að líða að leikslokum í leikjunum sem hófust 19:15.

20:52 Blikar óheppnir að komast ekki yfir en Jóhann Berg átti flotta fyrirgjöf beint á kollinn á Marel sem skallaði rétt framhjá. Óheppnir.

20:51 HK klára sínar skiptingar núna þegar þeir skipta Eyþóri Helga Birgissyni inn fyrir Þorlák Hilmarsson.

20:47 Andrés Jóhannesson nælir sér í gult spjald fyrir brot í Keflavík.

20:47 Adolf Sveinsson kemur inn í liði Þróttara fyrir íþróttafréttamanninn góðkunna, Hjört Hjartarson.

20:46 Tvær skiptingar í Laugardalnum, Aaron Palomares fer útaf og Hörður Magnússon kemur inn hjá HK og markaskorarinn Ívar Björnsson út fyrir Óðinn Árnason hjá Fram.

20:46 Búið að flauta til hálfleiks í Kaplakrika í leik FH og ÍA. Markalaust sem stendur.

20:46 Þórarinn Kristjánsson í sannkölluðu dauðafæri í Keflavvik en Fjalar Þorgeirsson varði skot hans meistaralega í horn.

20:45 Guðjón Heiðar bjargar á línu fyrir Skagamenn, fyrst átti leikmaður fyrstu umferðar, Tryggvi Guðmundsson skot að marki sem varnarmenn ÍA komust fyrir en Tryggvi tók frákastið og vippaði boltanum en Guðjón bjargaði.

20:44 Fylkismaðurinn Ian Jeffs nælir sér í gult spjald fyrir brot á 76. mínútu.

20:43 Mark dæmt af í Laugardalnum. Finnur Ólafsson átti skot í þverslá og niður, virtist fara inn fyrir línuna en dómarinn dæmdi ekki mark. Mitja Brulc fylgdi eftir en hann var réttilega dæmdur rangstæður.

20:42 Blikar miklu hættulegri núna á Kópavogsvellinum og Þróttarar rétt sluppu fyrir horn er þeir björguðu á línu.

20:41 Haukur Ingi Guðnason með gott skot beint úr aukaspyrnu á 71. mínútu en Ómar Jóhannsson varði vel. Vonandi að Fylkismenn nái að fylgja þessu eftir!

20:40 Varnarjaxlinn Árni Thor með skalla en Daði Lárusson varði vel en andartaki síðar eða á 38. mínútu fékk Atli Guðnason dauðafæri fyrir opnu marki en skaut yfir. Hvernig var þetta hægt!

20:38 MARK! Ívar Björnsson kemur Frömurum í 2-0 með föstum skalla eftir hornspyrnu frá Sam Tillen.

20:35 Í Kaplakrika voru Atli Viðar og Cingel aftur í eldlínunni á 32. mínútu. Núna var Cingel nálægt því að setja boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá Atla.

20:34 Arnór Sveinn fær gult hjá Blikum fyrir brot á 62. mínútu.

20:29 Þórður Steinar Þróttari fær gult spjald á 57. mínútu en annars er ekkert að gerast í Kópavoginum, fátt um spennandi tilþrif og leikurinn mjög bragðdaufur.

20:27 Dalvíkingurinn Atli Viðar Björnsson nálægt því að sleppa í gegn en Dario Cingel varnarjaxl ÍA bjargar frábærlega með tæklingu á ögurstundu.

20:26 Gunnleifur Gunnleifsson markvörður HK gengur af velli og inn á í hans stað kemur Ögmundur Ólafsson en Gunnleifur sem er fyrirliði HK varð fyrir meiðslum í fyrri hálfleik og getur hann greinilega ekki haldið áfram. Finnbogi Llorens mun leiða liðið það sem eftir er.

20:24 Fylkismaðurinn Peter Gravesen fær gult spjald fyrir brot á 56. mínútu. Gengur lítið hjá Fylkismönnum þessa stundina.

20:22 Árni Ingi Pjetursson fékk gult spjald eftir þrettán mínútna leik í Krikanum en hann braut á Atla Guðnasyni.

20:21 Þróttarinn Hallur Hallsson var að krækja sér í gult spjald á Kópavogsvellinum.

20:18 MARK! Það er allt að gerast. Nú rétt í þessu var Heiðar Geir Júlíusson að koma Fram yfir gegn HK á Laugardalsvellinum með skalla eftir fyrirgjöf frá Ívari Björnssyni og var Heiðar Geir einn á auðum sjó í teig Kópavogsmanna. Skallinn var óverjandi fyrir Gunnleif í markinu.

20:17 MARK! Guðmundur Steinarsson kemur Keflvíkingum í 2-0 með skoti upp í bláhornið rétt fyrir utan vítateig Fylkis eftir skyndisókn.

20:15 Verið er að flauta til leiks á öllum vígvöllum - seinni hálfleikur að hefjast. Við viljum mörk!

20:14 Marel Baldvinsson að koma inn fyrir Magnús Pál hjá Blikunum en búið er að flauta síðari hálfleik á í Kópavoginum.

20:13 Áhorfendur FH sungu hástöfum ,,Hann vill fá mömmu sína" þegar Bjarni Guðjónsson lá eftir meiddur, annars lítið að gerast þar.

20:02 Búið að flauta til hálfleiks í Laugardalnum.

20:01 Finnbogi Llorens fékk að líta gula spjaldið eftir tæklingu á Paul McShane á 45.mínútu og er McShane utan vallar sem stendur en ætli hann bíti ekki á jaxlinn og harki þetta af sér.

20:00 Búið að flauta til hálfleiks í Keflavík þar sem heimamenn eru 1-0 yfir gegn Fylki og sömuleiðis er kominn hálfleikur í Kópavoginum. Þá er búið að flauta til leiks í Kaplakrika þar sem FH og ÍA mætast.

19:54 Mætingin í Kópavoginn er frábær, stúkan er full og góð stemning.

19:51 Eggert Rafn Einarsson var að fá gult spjald í Grafarvogi en leikurinn er mjög fjörugur.

19:47 MARK! Fjölnir er búið að jafna en það var Ásgeir Aron Ásgeirsson sem gerði það eftir að hafa verið undir í sex mínútur náði Fjölnir að jafna.

19:45 Framarar komust þrír á móti tveimur varnarmönnum HK, en slök sending Daða á Paul McShane, gerði að að verkum að Framarar fengu hornspyrnu þar sem boltinn datt fyrir Auðun Helgason sem náði ekki að skora

19:42 MARK! Guðjón Baldvinsson er búinn að koma KR yfir en þetta er annað mark hans í 2 leikjum.

19:36 Byrjunarliðin í Krikanum eru kominn, tvær breytingar hjá ÍA Árni Ingi Pjetursson kemur inn fyrir Jón Vilhelm sem tekur út leikbann og Guðjón Heiðar kemur inn fyrir Igor Bilokapic

FH (4-3-3): Daði Lárusson (M) (F); Guðmundur Pétursson, Freyr Bjarnason, Tommy Nielsen, Hjörtur Logi Valgarðsson; Davíð Þór Viðarsson, Dennis Siim, Jónas Grani Garðarsson, Atli Viðar Björnsson, Tryggvi Guðmundsson, Atli Guðnason

ÍA (4-5-1) Esben Madsen (M), Árni Thor Guðmundsson, Helgi Pétur Magnússon, Dario Cingel, Guðjón Heiðar Sveinsson, Árni Ingi Pjetursson, Heimir Einarsson, Bjarni Guðjónsson, Björn Bergmann Sigurðsson, Vjekoslav Svadumovic, Stefán Þór Þórðarson.

19.34 MARK! Keflavík er komið yfir suður með sjó en það var Hólmar Örn Rúnarsson sem skoraði markið beint úr hornspyrnu, fyrsta markið í kvöld

19:33 20 mín liðnar hér í Kópavoginum og mikið jafnræði með liðunum, Þróttarar ætla greinilega að bæta fyrir slæman leik gegn Fjölni

19:31 Dauðafærin eru á Laugardalsvelli nú var Paul McShane sem fékk gott markfæri einn á móti Gunnleifi en skot hans beint á Gunnleif.

19:30 Eftir sendingu frá Daða Guðmundssyni, komst Hjálmar Þórarinsson í dauðafæri einn á móti Gunnleifi en Gunnleifur varði glæsilega og barst boltinn fyrir utan teig en skot Heiðar Geirs rétt yfir markið, en enginn var í markinu

19:21 Í Keflavík var Guðmundur Steinarsson í ágætu færi en skot hans laust og beint á Fjalar í markinu

19:15 Leikirnir eru hafnir á öllum stöðum en Þróttarar voru næstum búnir að skora eftir 40 sekúndur gegn Blikum.

19:11: Byrjunarliðin í Grafarvogi þar sem KR kemur í heimsókn eru klár og hvorki Logi Ólafsson né Ásmundur Arnarsson gera breytingu á byrjunarliðunum frá því um helgina.

Fjölnir (4-3-3) Þórður Ingason (M), Gunnar Valur Gunnarsson, Kristján Hauksson, Óli Stefán Flóventsson, Magnús Ingi Einarsson, Gunnar Már Guðmundsson, Ágúst Gylfason , Ásgeir Aron Ásgeirsson, Pétur Georg Markan, Tómas Leifsson, Ólafur Páll Snorrason

KR (4-4-2): Kristján Finnbogason, Eggert Rafn Einarsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Gunnlaugur Jónsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson, Gunnar Örn Jónsson , Viktor Bjarki Arnarson, Jónas Guðni Sævarsson, Óskar Örn Hauksson, Guðjón Baldvinsson, Björgólfur Takefusa.

18:54: Byrjunarliðin hjá Fram og HK eru líka kominn.

Fram: Hannes Þór Halldórsson, Ingvar Þór Ólason, Ian Paul McShane, Reynir Leósson, Daði Guðmundsson, Heiðar Geir Júlíusson, Samuel Lee Tillen, Hjálmar Þórarinsson, Halldór Hermann Jónsson, Ívar Björnsson

HK; Gunnleifur Gunnleifsson, Þorlákur Hilmarsson, Finnur Ólafsson, Stefán Jóhann Eggertsson, Goran Brajkovic, Hörður Árnason, Hermann Geir Þórsson, Finnbogi Llorens, Hólmar Örn Eyjólfsson, Mitja Brulc, Aaron Palomares

18:52 Byrjunarliðin í Keflavík eru klár þar sem Keflavík tekur á móti Fylkir. Hólmar Örn Rúnarsson kemur inn í liðið hjá Keflavík

Keflavík 4-3-3 Ómar Jóhannsson – Guðjón Árni Antoníusson, Guðmundur Viðar Mete, Kenneth Gustafsson, Nicolai Jörgensen – Hallgrímur Jónasson, Hans Yoo Mathiesen, Hólmar Örn Rúnarsson – Simun Samuelssen, Guðmundur Steinarsson, Patrik Redo

Fylkir 4-4-2 Fjalar Þorgeirsson, Guðni Rúnar Helgason, David Hannah, Kristján Valdimarsson, Víðir Leifsson – Hermann Aðalgeirsson, Ólafur Stígsson, Ian Jeffs, Peter Gravesen – Haukur Ingi Guðnason, Allan Dyring

18:48 Komiði sæl og blessuð hér verður fylgt með öllum leikjunum í Landsbankadeild Karla sem fram fara í kvöld. Byrjunarliðin í Kópavogi eru tilbúinn þar sem Blikar taka á móti Þrótti.

Ólafur Kristjánsson gerir enga breytingu á sínu liði frá jafnteflinu við ÍA.

Breiðablik Casper Jacobsen (M), Árni K. Gunnarsson, Srdjan Gasic, Nenad Petrovic, Arnar Grétarsson F, Prince Mathilda, Magnús Páll Gunnarsson, Olgeir Sigurgeirsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Nenad Zivanovic og Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Þróttur Bjarki Guðmundsson (M), Hallur Hallsson, Michael David Jackson, Eysteinn Pétur Lárusson, Haukur Páll Sigurðsson, Hjörtur J. Hjartarson, Magnús Már Lúðvíks, Rafn Andri Haraldsson, Dennis Danry, Kristján Ómar Björnsson og Þórður Steinar Hreiðarsson.
Slapp
banner