Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 18:28
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða HK 
Jóhann Björnsson í ÍR á láni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
ÍR-ingar hafa fengið varnarmaninn Jóhann Björnsson á láni frá HK næsta mánuðinn en Kópavogsliðið getur kallað hann til baka um miðjan júní.

Jóhann lék með ÍR í yngri flokkunum en í öðrum flokki gekk hann til liðs við HK.

Tímabilin 2004-2006 var Jóhann fastamaður hjá HK og árið 2006 var hann valinn knattspyrnumaður félagsins. Í fyrra lék hann hins vegar einungis þrjá síðustu leiki HK í Landsbankadeildinni, eftir að hafa átt við meiðsli að stríða mest allt sumarið.

Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur í vetur verið í skóla í Bandaríkjunum en hann er nú kominn heim og mun leika með ÍR næstu vikurnar.

,,Hann mun æfa áfram með okkur og kemst vonandi í góða leikæfingu með því að spila með ÍR næstu vikurnar," sagði Gunnar Guðmundsson þjálfari HK á vef félagsins.

Jóhann hefur fengið leikheimild með ÍR og getur því leikið með liðinu gegn Gróttu í fyrstu umferðinni í annarri deild karla annað kvöld en ÍR-ingum er spáð efsta sætinu í sumar.
Slapp
banner
banner
banner