Tvö mörk snemma í seinni hálfleik gerðu gæfumuninn
Fram 2 – 0 HK
1-0 Heiðar Geir Júlíusson (’47)
2-0 Ívar Björnsson (’65)
1-0 Heiðar Geir Júlíusson (’47)
2-0 Ívar Björnsson (’65)
Það var blíðskaparveður í Laugardalnum í kvöld þegar Framarar fengu HK í heimsókn. Framarar sigruðu Fylki í fyrstu umferðinni með þremur mörkum gegn engu, en HK fengu aftur á móti skell gegn Bikarmeisturum FH,
Fyrsta marktækifæri leiksins áttu Framarar og það á 2.mínútu leiksins en Ívar Björnsson átti þá skalla framhjá marki HK eftir aukaspyrnu frá Samuel Tillen. Á 15.mínútu voru Kópavogsmenn stálheppnir að lenda ekki marki undir, eftir sendingu frá Daða Guðmundssyni komst Hjálmar Þórarinsson í dauðafæri einn á móti Gunnleifi en Gunnleifur varði glæsilega og barst boltinn fyrir utan teig en skot Heiðars Geirs sem fékk boltann fór rétt yfir galopið markið.
Mínútu seinna komst Paul McShane síðan í gott markfæri einn á móti Gunnleifi en skot hans beint á Gunnleif. Áfram heldu Framarar að sækja, á 26.mínútu sóttu Framarar þrír á móti tveimur varnarmönnum, en slök sending Daða Guðmundssonar á Paul McShane gerði það að verkum að HK náðu að bjarga í horn. Úr hornspyrnunni datt boltinn fyrir fætur Auðun Helgasonar en skot hans máttlaust og framhjá fór boltinn.
Í næstu sókn geystist Aaron Palomares upp hægri kantinn og var kominn út á endalínu og gaf fyrir en boltinn aðeins of aftarlega og náðu Framarar því að bægja hættunni frá.
Eftir misheppnaða sendingu Aarons barst boltinn á Hjálmar Þórarinsson sem átti skot rétt fyrir utan teig en skot hans yfir markið.
Á 42. mínútu átti Daði Guðmundsson ágætis marktilraun en utanvert ristarskot hans rétt yfir markið. Á 45.mínútu fékk Finnbogi Llorens að líta fyrsta gula spjaldið í leiknum eftir brot á Paul McShane.
Fyrsta skot HK á markið átti Hermann Geir Þórsson á 47.mínútu fyrri hálfleiks en skot hans beint á Hannes Þór Halldórsson í marki Fram. Markalaust í hálfleik 0-0. Framarar mun skeinu hættari í fyrri hálfleik og áttu mun fleiri hættulegri færi. Sóknarleikur HK einkenndist af spili upp hægri kantinn sem enduðu með fyrirgjöf frá Aaroni Palomares.
Það voru ekki liðnar nema rétt rúmlega tvær mínútur af seinni hálfleiknum er Heiðar Geir Júlíusson skoraði mark með skalla eftir fyrirgjöf frá Daða Guðmundssyni, en Heiðar Geir var einn og óvaldaður í teignum og átti Gunnleifur ekki möguleika í skallann. Framarar voru svo óheppnir að komast ekki tveimur mörkum yfir skömmu síðar er Ingvar Þór Ólason rétt missti af fyrirgjöf.
Á 53.mínútu þurfti Gunnleifur Gunnleifsson fyrirliði og markvörður HK að fara af velli vegna meiðsla á ökkla, Ögmundur Ólafsson kom inná fyrir Gunnleif og Finnbogi Llorens tók við fyrirliðabandinu.
Framarar héldu áfram að sækja og var Ívar Björnsson ekki langt frá því að skora annað mark Fram í leiknum en skot hans fór rétt framhjá. En Ívar skoraði samt sem áður annað mark Fram í leiknum á 65.mínútu, eftir hornspyrnu frá Sam Tillen kom Ívar aðvífandi og stangaði boltann inn, óverjandi fyrir Ögmund í marki HK.
Á 70.mínútu gerðu HK-menn skiptingu og nú var það Aaron Palomares sem var tekinn af velli og inná kom Hörður Magnússon, en Aaron var mjög frískur á hægri kantinum hjá HK í fyrri hálfleik og átti hann ófáar fyrirgjafirnar.
Skömmu eftir skiptinguna átti Finnur Ólafsson hörkuskot á mark Framara eftir sendingu frá Þorláki Hilmarssyni, skot Finns fór í slánna og niður, boltinn virtist fara inn fyrir línuna en Kristinn Jakobsson lét leikinn halda áfram, Mitja Brulc tók frákastið og skallaði boltann í netið, en réttilega dæmdur rangstæður, þarna máttu Framarar teljast stálheppnir.
Á 75.mínútu fækkaði Þorvaldur Örlygsson í sókninni og fjölgaði í vörninni og þar af leiðandi tók hann markaskorarann Ívar Björnsson af velli og setti Óðinn Árnason inná. Bæði lið sóttu af krafti og áttu Framarar nokkuð góð skot að marki en flest þeirra fóru rétt yfir. Á meðan Framarar fækkuðu í sókninni bætti Gunnar Guðmundsson þjálfari við í sóknina og setti Eyþór Helga Birgisson inná og tók Þorlák Hilmarsson útaf. Eyþór kom með frískt blóð í leik HK og átti nokkrar ágætis rispur.
Framarar voru orðnir fjölmennir í vörninni en voru samt sem áður alltaf hættulegir og beittu skyndissóknum. Aftur á móti voru HK-menn þéttir og reyndu að spila boltanum á kantana og koma með fyrirgjafir inn í teig, sóknar aðgerðir HK-manna skiluðu litlum árangri og þurfti Hannes Þór lítið að skutla sér í leiknum, en flest skot HK voru ekki á rammann. Undir lokin komu síðan tveir efnilegir leikmenn Framara inn, þeir Jón Orri Ólafsson og Guðmundur Magnússon og útaf fóru þeir Auðun Helgason sem átti prýðisleik í vörn Fram og gaf lítið færi á sér og Paul McShane sem stóð sig einnig vel og spilaði af stakri prýði.
Sigur Framara var sanngjarn í kvöld, spiluðu mun betur og áttu fleiri marktæki færi. Fram vörnin var sterk og gáfu sóknarmönnum engin færi á sér.
Fram (4-4-2): Hannes Þór Halldórsson (M),Daði Guðmundsson,Reynir Leósson (F), Auðun Helgason(Guðmundur Magnússon(90), Ingvar Þór Ólason, Samuel Lee Tillen, Halldór Hermann Jónsson, Ian Paul McShane (Jón Orri Ólafsson(86), Heiðar Geir Júlíusson, Ívar Björnsson(Óðinn Árnason(75), Hjálmar Þórarinsson,
Ónotaðir varamenn: Ögmundur Kristinsson (M), Joseph Tillen, Hlynur Magnússon, Jón Guðni Fjóluson,
HK (4-4-2): Gunnleifur Gunnleifsson (M) (F)(Ögmundur Ólafsson (M), 53), Stefán Jóhann Eggertsson, Hólmar Örn Eyjólfsson,Finnbogi Llorens, Hörður Árnason, Goran Brajkovic, Finnur Ólafsson, , Þorlákur Hilmarsson,Aaron Palomares(Hörður Magnússon, (70), Hermann Geir Þórsson(Eyþór Helgi Birgisson(77), Mitja Brulc,
Ónotaðir varamenn: Ásgrímur Albertsson, Atli Valsson, Calum Þór Bett, Almir Cosic
Dómari: Kristinn Jakobsson
Aðstæður: Blíðskapar veður í dalnum og völlurinn þokkalegur miðað við árstíma.
Áhorfendur: 804
Maður leiksins: Ívar Björnsson
Gul spjöld: Finnbogi Llorens(Fram (’45),


