Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 21:15
Gunnar Gunnarsson
Umfjöllun: Markalaust jafntefli í Kópavoginum
Arnór Sveinn Aðalsteinsson í baráttu við tvo Þróttara
Arnór Sveinn Aðalsteinsson í baráttu við tvo Þróttara
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Prince Rajcomar með lipra takta á Kópavogsvelli í kvöld
Prince Rajcomar með lipra takta á Kópavogsvelli í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Bjarki Freyr Guðmundsson markvörður Þróttara slær boltann burt.
Bjarki Freyr Guðmundsson markvörður Þróttara slær boltann burt.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Breiðablik 0 - 0 Þróttur R.

Blikar tóku á móti nýliðum Þróttar á Kópavogsvelli í kvöld. Hann var ekki merkilegur fyrri hálfleikurinn sem liðin buðu uppá og satt að segja ákaflega bragðdaufur.

Gestirnir í Þrótti fengu besta færi hálfleiksins strax á fyrstu mínútunni en skot þeirra var varið af varnarmanni og fór þaðan í horn.

Eitt skásta tækifæri Breiðabliks í fyrri hálfleik kom þegar Jóhann Berg Guðmundsson átti góðan sprett á 35. mínútu, hann prjónaði sig inn í vítateig framhjá tveimur varnarmönnum en Þróttarar björguðu á síðustu stundu.

Marel Jóhann Baldvinsson kom inná hjá Blikum í upphafi seinni hálfleiks fyrir Magnús Pál Gunnarsson.

Sama handrit var á byrjun seinni hálfleiks því Hjörtur Júlíus Hjartarson var næstum því búinn að koma Þrótturum yfir þegar hann fékk fínt færi eftir 40 sekúnda leik en Casper í marki Blika varði vel.

Blikar tók öll völd á vellinum um miðjan hálfleikinn og juku sóknarþunga sinn jafnt og þétt, á 69. mínútu kom gott færi hjá Blikum, Steinþór Freyr Þorsteinsson sem hafði komið inná sem varamaður átti laglegan sprett á hægri kanti og kom með góða fyrirgjöf sem hvorki Prince Rajcomar né Marel Jóhann náðu að nýta. Þróttarar sannarlega heppnir þar.

Undir lokin kom svo fyrirgjöf frá Jóhanni Berg fyrir markið á 81. mínútu beint á kollinn á Marel sem skallaði rétt framhjá og Blikar sannarlega óheppnir að komast ekki yfir.

Reyndist það vera seinasta tækifæri leiksins og liðin urðu að sættast á skiptan hlut. Jafntefliskóngarnir í Breiðablik frá því í fyrra hefja því tímabilið með tveimur jafnteflum á sama tíma og Þróttarar geta vel við unað að hafa landað sínu fyrsta stigi í Landsbankadeildinni á þessu sumri.

Byrjunarlið Breiðabliks (4-4-2):Casper Jacobsen (M) Árni K. Gunnarsson, Srdjan Gasic, Nenad Petrovic, Arnar Grétarsson (F), Prince Rajcomar, Magnús Páll Gunnarsson, Olgeir Sigurgeirsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Nenad Zivanovic og Arnór Sveinn Aðalsteinsson.

Varamenn: Kristinn Steindórsson, Vignir Jóhannsson M, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Guðmann Þórisson, Marel Jóhann Baldvinsson, Kristinn Jónsson og Haukur Baldvinsson.

Byrjunarlið Þróttar (4-4-2):Bjarki F. Guðmundsson (M), Hallur Hallsson, Michael David Jackson, Eysteinn P. Lárusson (F), Haukur Páll Sigurðsson, Hjörtur J. Hjartarson, Magnús Már Lúðvíksson, Rafn Andri Haraldsson, Dennis Danry, Kristján Ómar Björnsson og Þórður Steinar Hreiðarsson.

Varamenn: Adolf Sveinsson, Carlos Bernal, Ismael Silva Francisco, Andrés Vilhjálmsson, Ingvi Sveinsson, Jón Ragnar Jónsson og Andri Fannar Helgason (M).

Maður leiksins: Jóhann Berg Guðmundsson
Dómari: Einar Örn Daníelsson
Áhorfendur: 1.268
Völlur: Virkilega flottur miðað við árstíma.
Fjölmiðlaaðstaðan: Algjörlega til fyrirmyndar.


Slapp
banner